Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Vetrarfrí fjölskyldunnar á Suðurlandi

Ferðaþjónustuaðilar verða með ýmis tilboð með sérstakri áherslu á fjölskylduna á meðan á vetrarfríum stendur, 15. – 25. feb og 28. feb - 8.mars.

Vetrarfrí grunnskólanna eru á næsta leiti og á Suðurlandi má finna fjölbreytta skemmtun og upplifun fyrir alla fjölskylduna. Ferðaþjónustuaðilar verða með ýmis tilboð með sérstakri áherslu á fjölskylduna á meðan á vetrarfríum stendur, 15. – 25. feb og 28. feb - 8.mars.

Á Suðurlandi er gott aðgengi, stutt í náttúruperlur og ótrúlega margt í boði, allt frá hálendi niður að sjó. Úr mörgu er að velja í afþreyingu hvort sem það er gönguferð um skóga eða svartar fjörur, hestaferð með heimafólki, fræðsla í gróðurhúsi, jöklaferðir eða heimsókn í sundlaugar á svæðinu. Söfnin eru fjölmörg og víða áhugaverðar sýningar í boði fyrir alla fjölskylduna.

Suðurland er sannarlega ekki síður fyrir Íslendinga en erlenda ferðamenn. Með því að ferðast um heimabyggð styrkjum við þjónustu og afþreyingu sem er í boði á okkar svæði og stuðlum að því að sú þjónusta verði áfram í boði bæði fyrir heimamenn og gesti. Ein af jákvæðu áhrifum ferðaþjónustunnar er fjölbreytileiki veitingastaða, afþreyingar og gistingar. Með tilkomu ferðamanna til landsins er orðin möguleiki fyrir fyrirtæki að reka þessa þjónustu allt árið um kring og heimamenn njóta síðan góðs af. Því er kjörið tækifæri að nýta sér þjónustuna í vetrarfríum og njóta upplifunar í heimabyggð.

Haust- og vetrarfrí fjölskyldunnar er verkefni sem Markaðsstofa Suðurlands fór af stað með haustið 2018 og er verkefnið unnið í samstarfi við faghóp sveitarfélaga um ferðamál á Suðurlandi. Markmið verkefnisins er að draga fram fjölbreytta möguleika sem fjölskyldan getur gert saman á Suðurlandi í haust- og vetrarfríum.

Nánari upplýsingar um tilboðin og hugmyndir að því sem fjölskyldan getur gert og notið saman á Suðurlandi er á viðburðardagatali south.is.