Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Aðgerðaáætlun ferðaþjónustunnar – vinna hafin

Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra hefur skipað sjö starfshópa sem falið er að vinna tillögur að aðgerðaráætlun fyrir ferðamálastefnu til 2030.
Mynd: Stjórnarráðið
Mynd: Stjórnarráðið

Gert er ráð fyrir að stefnan og aðgerðaáætlunin verði lögð fyrir Alþingi í formi tillögu til þingsályktunar um á vorþingi 2024.

Ragnhildur Sveinbjarnardóttir, framkvæmdastjóri MSS, hefur verið skipuð í einn af þessum starfshópum sem mun fjalla um málefni Rannsókna og nýsköpunar þar sem Már Másson framkvæmdastjóri Fossfall ráðgjafar fer með formennsku.

Hinir hóparnir eru:
Sjálfbærni og orkuskipti.
Formaður: Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans.

Samkeppnishæfni og verðmætasköpun.
Formaður: Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu.

Uppbygging áfangastaða.
Formaður: Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.

Hæfni og gæði.
Formaður: Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við Háskóla Íslands.

Heilsu-, veitinga- og hvataferðaþjónusta.
Formaður: Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu-, markaðs-, og vöruþróunarsviðs Bláa lónsins.

Menningartengd ferðaþjónusta.
Formaður: Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu.

Hver starfshópur er skipaður sjö til níu sérfróðum aðilum, auk formanns. Miðað er við að hóparnir hafi víðtækt samráð við ferðaþjónustuna og aðra haghafa og skili fyrstu drögum að aðgerðum fyrir 1. október 2023. Þær tillögur fara í opið samráð í samráðsgátt stjórnvalda. Hóparnir skila lokatillögum til stýrihóps fyrir 15. desember 2023 sem samræmir aðgerðir í heildstæða aðgerðaáætlun og skilar til ráðherra.
„Það skiptir miklu máli að skapa ferðaþjónustunni hagfelld skilyrði til þess að vaxa og dafna með sjálfbærum hætti með það fyrir augum að skapa aukin verðmæti og lífsgæði fyrir íslenskt samfélag. Ég hef miklar væntingar til vinnu starfshópanna enda höfum við fengið til liðs við okkur fjölbreytt og öflugt fólk með víðtæka þekkingu og reynslu hvert á sínu sviði,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra.

Markaðsstofur landshlutanna eiga fulltrúa í flestum hópum og hvetjum við hjá Markaðsstofu Suðurlands alla áhugasama að hafa samband um málefni sem tengjast þessari vinnu.
Nánar á vef stjórnarráðsins