Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sycamore Tree

17. júní

Sycamore Tree hefur unnið sig inn í hug og hjörtu landsmanna á síðustu árum og lög af síðastu plötum dúettsins “ Western Sessions “ og “ Winter Songs “ sem komu út núna árinu hafa klifið toppa vinsældarlista landsins eins og mörg lög af þeirra fyrri verkum einnig hafa gert. Það er sannarlega við hæfi að þau Ágústa Eva Erlendsdóttir og Gunni Hilmarsson snúa aftur í Skyrgerðina, Hveragerði á sjálfan þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Með þeim verður hinn einstaki Þorleifur Gaukur Davíðsson á Gítar og munnhörpu. Þau munu spila lög af þeirra fyrri verkum ásamt efni af næstu breiðskífu sem kemur út seinna á árinu. Dúettinn hefur unnið sér stall sem ein besta tónleikasveit landsins og kvöldstund með þeim er ósvikin gæðastund.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30. Miðaverð 3.990.

Staðsetning

Skyrgerðin Hveragerði