Upplýsingar um verð
Ókeypis
Laugardaginn 12. júní gengur landvörður með gestum inn að hraunbýlunum í Þingvallasveit.
Gangan hefst við Þjónustumiðstöðina á Leirum klukkan 13:00 og er öllum opin og ókeypis.
Gangan býður gestum að njóta fornra þjóðleiða, blómlegs gróðurfars og ríkulegrar náttúru.
Má áætla að gangan taki um þrjá tíma með vel völdum fræðslustoppum.