Hoffell
Hoffell er landnámsjörð innst í Nesjum og að hluta innan Vatnajökulsþjóðgarðs. Landslag umhverfis Hoffell er fjölbreytilegt og fagurt, skriðjöklar, fjallstindar, ár og aurar. Fundist hefur heitt vatn á Hoffelli og eru þar heitar laugar í náttúrulegu umhverfi.
Landsvæðið einkennist af Hoffellsjökli ásamt gabbró grjóti sem gefur umhverfinu óvenjulegan grænan blæ. Upprunalega finnst gabbró grýti djúpt neðanjarðar en það finnst á svæðinu vegna landriss og jökulrofs.
Við Hoffell eru nokkrar gönguleiðir og svæðið er varðveitt til útivistar enda er þar mikill gróður, dýralíf og ýmis jarðfræðileg undur.
Frá Þjóðvegi 1 er ekið um 3 km malbikaðan veg að Gistiheimilinu Hoffelli, en þar eru einnig heitir pottar í einstaklega fallegri náttúru. Til að komast að bílastæðinu við Hoffellsjökul er ekið áfram um 4 km langan malarveg. Vegurinn er grófur og því mælt með fjórhjóladrifnum bílum.
Óheimilt er að gista yfir nótt á bílastæðinu við Hoffellsjökul. Athugið veður og færð áður en lagt er af stað í lengri gönguferðir.