Hlöðueldhúsið býður upp á matarupplifun fyrir starfsmannahópa, vinahópa og fjölskyldur í gamalli hlöðu og áföstu fjárhúsi í Oddsparti í Þykkvabænum, 16 km frá þjóðvegi 1, rétt hjá Hellu.
Vel útbúið eldhús rúmar vel 8-16 manna hópa sem læra nokkrar nýjar uppskriftir sem hægt er að nýta heima. Stærri hópar geta fengið viðaminni námskeið þar sem allir taka þátt að einhverju leiti (hafið samband í síma 8835300 ).
Hópurinn eldar saman undir leiðsögn, úr Íslensku hráefni. Einnig ræktum við kryddjurtir, salat og æt blóm sem við notum í eldhúsinu okkar.
Hver hópur (að lágmarki 8 manns) þarf að bóka fyrirfram í síma 8835300 eða senda tölvupóst, heljastay@gmail.com
Á heimasíðunni www.hlöðueldhúsið.is er að finna nokkur leiðbeinandi námskeið en hægt er að klæðskerasníða matseðilinn fyrir hvern hóp.
Stærri hópar (20-50 manna) geta komið í heimsókn/ veislu en þá eldum við fyrir hópinn. Allskonar hópar koma, kórar á ferðinni, kvenfélög, golffélagar, afmælisveislur.
Heimsókn í gróðurbraggann og Textíl er innifalið í heimsókninni fyrir alla hópa.