Uppspretta Suðurlands 6.-7. nóvember 2026
Dagana 6.–7. nóvember verður Uppspretta – hátíð atvinnulífs og nýsköpunar á Suðurlandi – haldin í Horseday-höllinni í Ölfusi í fyrsta skipti.
Markmið Uppsprettu er að leiða saman fyrirtæki, frumkvöðla, sveitarfélög og aðra sem láta sig atvinnuþróun og nýsköpun á Suðurlandi varða. Hátíðin verður vettvangur til að kynna fjölbreytta starfsemi, skapa ný tengsl og vekja athygli á því öfluga atvinnulífi sem er að finna í landshlutanum.
Með þátttöku gefst tækifæri til að:
- kynna fyrirtækið, vörur þess og þjónustu
- hitta önnur fyrirtæki og mögulega samstarfsaðila
- efla sýnileika fyrirtækisins á Suðurlandi
- taka þátt í samtali um framtíð atvinnulífs og nýsköpunar á svæðinu
Fyrri daginn er ráðstefna með megin áherslu á nýsköpun og sýningarsvæði fyrirtækja opnar. Seinni daginn er sýningarsvæðið opið almenningi. Markaðsstofan hvetur ferðaþjónustuna að taka þátt í þessari hátíð atvinnulífs og kynna þann fjölbreytta, lifandi og skemmtilega starfsvettvang sem ferðaþjónustan á Suðurlandi er. Einnig er tækifæri að kynna fyrir gestum og þátttakendum öll þau tækifæri sem eru í sunnlenskri ferðaþjónustu fyrir starfsmannaskemmtanir, vinahópa, ráðstefnur og viðburði ýmis konar.
Nánari upplýsingar um hátíðina og þátttöku má finna á uppspretta.sass.is.
Skráning á hátíðina fer fram hér: https://uppspretta.sass.is/is/company-registration
Endilega hafið samband ef þið viljið fá frekari upplýsingar eða ræða mögulega þátttöku.