Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

RÁÐSTEFNA MARKAÐSSTOFA LANDSHLUTANNA (MAS) UM DREIFINGU FERÐAMANNA

Markaðsstofur landshlutanna (MAS) halda árlega ráðstefnu um málefni ferðaþjónustunnar í samstarfi við Deloitte. Ráðstefnan verður haldin í Iðnó, 15. september n.k. kl. 13-16.

Markaðsstofur landshlutanna (MAS) halda árlega ráðstefnu um málefni ferðaþjónustunnar í samstarfi við Deloitte. Ráðstefnan verður haldin í Iðnó, 15. september n.k. kl. 13-16.

Dagskráin er fjölbreytt og er að finna hér fyrir neðan. Þátttaka er án endurgjalds en vinsamlegast skráið ykkur hér.

Dreifing ferðamanna - Framtíð íslenskrar ferðaþjónustu á landinu öllu

Fundarstjóri: Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.

Ávarp Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra

Stóra myndin – ferðaþjónusta til framtíðar

Staða mála og horfur – ferðaþjónustan spurð - Björn Ingi Victorsson, endurskoðandi og sviðsstjóri Deloitte

Dreifing ferðamanna – áhersluverkefni í Vegvísi - Óskar Jósefsson framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála

Ferðamaðurinn kemur… - Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður, ferðaþjónusta og skapandi greinar, Íslandsstofa

Ferðamenn um land allt – hvað er nýtt? - Ólöf Ýrr Atladóttir, Ferðamálastjóri

Kaffi

Staða landshlutanna – innviðir, stefna, aðgerðir

Er engin afþreying? - Díana Mjöll Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Tanni Travel og formaður Ferðamálasamtaka Austurlands

Mikilvægi innanlandsflugs sem dreifileiðar - Guðmundur Óskarsson, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs Flugfélags Íslands

Vegagerðin og ferðaþjónusta til framtíðar - Einar Pálsson, forstöðumaður þjónustudeildar Vegagerðarinnar

Er rétt gefið? Sjónarhorn sveitarfélagsins - Jón Óskar Pétursson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps

Ferðamaðurinn er gestur - Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála

Hænan eða eggið? – Kári Viðarsson, leikhússtjóri Frystiklefans

Pallborðsumræður - Allir fyrirlesarar taka þátt í pallborðsumræðum sem Haraldur Ingi Birgisson Forstöðumaður viðskipta- og markaðstengsla Deloitte mun stýra.

Í lok ráðstefnunnar býður Deloitte upp á léttar veitingar.  

Skráning