Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Ráðið í starf sérfræðings í markaðsmálum hjá Markaðsstofunni

Ráðningarferli fyrir starf sérfræðings í markaðsmálum hjá Markaðsstofu Suðurlands er nú lokið og hefur Stefán Friðrik Friðriksson verið ráðinn til starfa.

Ráðningarferli fyrir starf sérfræðings í markaðsmálum hjá Markaðsstofu Suðurlands er nú lokið og hefur Stefán Friðrik Friðriksson verið ráðinn til starfa.

Stefán hefur mikla reynslu af stjórnun markaðsmála, miðlun og beinni markaðssetningu þar sem hann hefur m.a. starfað hjá sjónvarpsstöðinni N4 síðastliðin ár sem markaðs- og framleiðslustjóri með góðum árangri. Þá hefur Stefán starfað sjálfstætt við verkefnastjórnun, kvikmyndagerð, leikstjórn, markaðsráðgjöf og viðburðastjórnun.

Stefán Friðrik er með BA gráðu í miðlun og almannatengslum frá Háskólanum á Bifröst ásamt því að vera menntaður kvikmyndagerðarmaður frá Kvikmyndaskóla Íslands. Mun hann leiða markaðs- og kynningarmál áfangastaðarins hjá Markaðsstofunni, sinna samskiptum við hagsmunaaðila sem og ráðgjöf. Mun hann hefja störf á fyrstu mánuðum árs 2022 og bjóðum við hann velkominn til starfa.