Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

UPPBYGGINGARSJÓÐUR SUÐURLANDS AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM

Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar og menningar á Suðurlandi

Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar og menningar á Suðurlandi.

Markmið Uppbyggingarsjóðs Suðurlands:
• Að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs og jákvæða samfélagsþróun á Suðurlandi
• Að efla menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi
• Að styðja við atvinnuskapandi og/eða framleiðni aukandi verkefni á Suðurlandi

Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að hafa samband í síma 480 8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið styrkir@sudurland.is Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum vefinn www.sass.is

Starfandi fyrirtæki eru sérstaklega hvött til að sækja um í nýsköpunarverkefni.
Upplýsingar um úthlutunarreglur, leiðbeiningar við gerð umsókna og viðmið við mat á umsóknum er að finna hér á vef SASS.

Tekið er við umsóknum til 13. mars. Kl. 12.00