Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

NORA auglýsir verkefnastyrki 2022, fyrri úthlutun

Markmið með starfi NORA (Norræna Atlantssamstarfsins) er að styrkja samstarf á Norður-Atlantshafssvæðinu.

Markmið með starfi NORA (Norræna Atlantssamstarfsins) er að styrkja samstarf á Norður-Atlantshafssvæðinu. Ein leið að því markmiði er að veita verkefnastyrki tvisvar á ári til samstarfsverkefna á milli Íslands og a.m.k. eins annars NORA-lands, þ.e. Grænlands, Færeyja og/eða strandhéraða Noregs. Nú er komið að fyrri úthlutun ársins 2022.

Í ár skulu umsóknir taka mið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og þeirri stefnu Norrænu ráðherranefndarinnar að fyrir 2030 skulu Norðurlönd vera samstæðustu, grænustu og samfélagslega sjálfbærustu lönd heims. Nánari upplýsingar um stefnu NORA 2021-2024 má sjá á heimsíðunni, www.nora.fo

Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 7. mars 2022.

Hámarksstyrkur er 500.000 dkr. á ári og lengst er unnt að veita styrki til 3ja ára. Umsækjandi og samstarfsaðilar þurfa að leggja fram að lágmarki helming í heildarfjármögnun verkefnisins. Umsóknir skulu fela í sér samstarf á milli a.m.k. tveggja NORA-landa. Í umsóknunum skal taka mið af samstarfsáætlun NORA 2021-2024, auk ofangreindra atriða.

Þau svið sem helst eru styrkt að þessu sinni eru eftirfarandi:

  • Lífhagkerfi: Nýsköpunarverkefni þar sem lögð er áhersla á sjálfbæra nýtingu auðlinda lands og sjávar. Til dæmis verkefni þar sem virðiskeðjan einkennist af nýsköpun með nýju hráefni, nýrri framleiðsluvöru, matvöru sem hefur ekki farið um langan veg eða sælkeravöru sem framleidd er út frá sjálfbærri nýtingu staðbundinna hráefna.
  • Sjálfbær ferðaþjónusta: Sjálfbær ferðaþjónusta þar sem byggð er upp atvinnugrein í heimabyggð og tekjur haldast í heimabyggð. Sérstök áhersla á ferðaþjónustu til framtíðar.
  • Hringrásarhagkerfi: byggir á því að við nýtingu náttúruauðlinda tapist sem minnst verðmæti. Í forgangi eru verkefni sem einnig fela í sér samstarf sveitarfélaga á milli landa.
  • Flutningar: Samstarf um bættar og grænar lausnir í flutningum sem jafnframt tengja lönd og svæði betur saman. Á Norður-Atlantshafssvæðinu er mikið hafsvæði og í forgangi verða verkefni þar sem nýttar eru grænir og endurnýjanlegir orkugjafar í flutningum á hafinu.
  • Orka: Þróun endurnýjanlegra og rafdrifinna lausna í dreifbýli, lausna sem tryggja aðgengi að öruggri og grænni orku fyrir samfélög á NORA svæðinu. Í forgangi eru verkefni sem beinast að sértækum orkulausnum sem ekki eru háðar tengingu við að stærri orkuflutningskerfi.
  • Samfélag: það er mikilvæg undirstaða búsetu að fólki líði vel í sínu samfélagi og til staðar sé góð þjónusta. Sérstök áhersla er á samstarfsverkefni þar sem ungt fólk er virkjað í samfélaginu.
  • Verkefni viðskiptalegs eðlis og á fyrstu stigum. Ekki eru í þessum flokki styrkt verkefni sem eru alfarið menningarverkefni eða rannsóknaverkefni.

Við mat umsókna eru eftirfarandi þættir sérstaklega til skoðunar:

  • Tenging og þýðing verkefnisins út frá þeim sjö sviðum sem lýst er hér að ofan.
  • Raunhæfni verkefnishugmyndar.
  • Nýsköpun og ný hugsun sem framlag til búsetu á svæðinu
  • Samsetning þátttakenda og hlutverk þeirra og framlag í verkefninu
  • Hvert er notagildið í norrænu samhengi
  • Raunsæ og skýr fjárhagsáætlun
  • Hvernig nýtast niðurstöður verkefnisins

Umsóknir verða að uppfylla eftirfarandi kröfur:

  • Samstarfsaðilar skulu vera frá a.m.k. tveim NORA löndum. Fleiri samstarfsaðilar frá öðrum nágrannalöndum eru einnig leyfilegir. Þeir njóta þó ekki styrks frá NORA og teljast ekki með til þess að uppfylla skilyrði um a.m.k tvö NORA-lönd. Að auki skal eignarhald og aðkoma samstarfsaðila að verkefni vera jöfn.
  • Hámarksstyrkur er 50% af heildarfjármögnun verkefnisins, en þó aldrei hærri en 500.000 dkr. á ári og 1.500.000 dkr. á þriggja ára tímabili.
  • NORA þarf að hafa heimild til að kynna árangur verkefnisins á sínum vettvangi

Ef umsóknin uppfyllir ekki þessi skilyrð verður henni vísað frá.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu NORA, www.nora.fo

Rafrænt umsóknarform hefur nú verið opnað gegnum heimasíðu NORA, sjá:  https://umsokn.com/dk/app/nora

Tengiliður NORA á Íslandi: Sigríður K. Þorgrímsdóttir, sigga@byggdastofnun.is

Á heimasíðu NORA má finna nánari leiðbeiningar um útfyllingu umsóknar undir flipanum „PROJEKTSTØTTE“.