Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Njóttu Íslands í vetrarskrúðanum- á öruggan hátt

Það er fátt fegurra en Ísland að vetri til, þegar snjórinn umvefur landið á sólríkum degi. Þá er tilvalið að fara í ferðalag um Suðurlandið, skoða perlurnar í vetrarskrúðanum og njóta frábæru þjónustunnar sem landshlutinn hefur upp á að bjóða. Veðrið getur þó breyst hratt og það borgar sig að vera vel búinn. Hér koma nokkur ráð áður en ekið er af stað.
Vestrahorn er ólýsanlega fallegt á sólríkum vetrardegi. Mynd: Axelle Saint-Clair.
Vestrahorn er ólýsanlega fallegt á sólríkum vetrardegi. Mynd: Axelle Saint-Clair.

Ævintýrin eru best þegar öryggið er á oddinum. Hér eru nokkur góð ráð áður en haldið er af stað í ferðalagið:

1. Ástand vega og veðurspá Veðrið á Íslandi getur breyst hratt og því er mikilvægt að athuga aðstæður vel áður en lagt er af stað í ferðalag. 

  • Aðstæður á vegum: www.road.is veitir nýjustu upplýsingar um ástand á vegum, viðvaranir og vegalokanir. Einnig er hægt er að hringja í síma: +354 1777 til að fá ráðleggingar.
  • Veðurspá: www.vedur.is sýnir nýjustu veðurupplýsingar. Þar er meðal annars hægt að skoða vindstyrk, úrkomu og skyggni.

  • Ferðaráðleggingar: fylgstu með á www.safetravel.is til að leita ráða áður en lagt er af stað. 

2. Vertu á fjórhjóladrifnum bíl með vetrardekkjum Það er öruggast að vera á fjórhjóladrifnum bíl (4x4) þegar ekið er í vetrarfærð á Íslandi, einkum úti á landi. 

  • Nagladekk gera gæfumuninn og veita grip á hálum vegum.

  • Upphituð framrúða og speglar varna klakamyndun og auka þannig sýn.  

  • Best er að fylla á bensíntankinn fyrir brottför því bensínstöðvar geta verið dreifðar og stundum er langt á milli þeirra.

3. Aktu varlega og aðlagaðu akstur að aðstæðum Klaki, skafrenningur og bleyta geta gert akstur erfiðan. 

  • Hægðu á þér – Hámarkshraði er hugsaður fyrir ákjósanslegustu aðstæður; á veturna er öruggara að aka hægar.

  • Haltu báðum höndum á stýri – Vindhviður geta verið snarpar, einkum á opnum vegum og nálægt fjöllum.

  • Hafðu hemlunarvegalengd langa – Ísing þýðir lengri hemlunarvegalengd. Byrjaðu tímanlega að bremsa svo að dekkin nái gripi og bíllinn renni ekki.

  • Gakktu úr skugga um að ljósabúnaður ökutækisins sé í lagi – Vetur eru dimmir á Íslandi og ökuljós auka öryggi.

  • Flýttu þér hægt – Í vetrarfærð borgar sig að hafa tímann fyrir sér og flýta sér ekki um of. 

4. Vertu viðbúinn ef neyðaraðstæður koma upp Vetrarfærð getur leitt til tafa í umferðinni. Hafðu eftirfarandi í bílnum:

  • Fullhlaðinn farsíma og hleðslubanka.

  • Hlý föt, teppi, hanska og húfu ef neyðaraðstæður koma upp. 

  • Sjúkrakassa, vasaljós, matarbita og vatn.

  • Handsköfu og litla snjómoksturskóflu.

5. Virtu lokanir og viðvaranir Yfirvöld loka vegum öryggisins vegna og að aka inn á lokaða vegi getur verið hættulegt. Virtu allar viðvaranir og merkingar. Ekki aka utan vega, því það er ólöglegt og getur skemmt viðkvæm landsvæði.

6. Skipulegðu ferðir með tilliti til dagsbirtu

  • Í desember er bjart í 4-5 klukkustundir, en í febrúar í um 8 klukkustundir.

  • Byrjaðu aksturinn snemma til að nýta dagsbirtuna.

  • Forðastu langar ferðir í einu til að lágmarka akstur í myrkri.

  • Gistu á leiðinni og gerðu þannig meira úr ferðinni. Það eru fjölmargir gistimöguleikar á Suðurlandi.

7. Hvað á að gera í neyðartilvikum Ef þú festist og þarft að bíða í bílnum:

  • Vertu í bílnum og haltu á þér hita.

  • Hringdu í 112 ef þig vantar neyðaraðstoð.

  • Notadu SafeTravel appið til að senda út staðsetningu þína.

8. Njóttu ferðarinnar á öruggan hátt  Hafðu öryggið á oddinum og njóttu þess að ferðast að vetri til á fallega Suðurlandi.