Morgunfundur Markaðsstofunnar - "Hvernig nýti ég samstarfið sem best?"
Í kynningu markaðsstofunnar var stiklað á stóru um einfaldar aðgerðir sem samstarfsfyrirtækin geta farið út í til nýta aðild sína að henni sem best. Varðandi sýnileika á heimasíðunni okkar, www.south.is, kom fram að mikilvægt er að fara reglulega yfir skráningar á síðunni og ganga úr skugga um að fyrirtæki séu rétt flokkuð í gagngrunni Ferðamálastofu. Gagnlegt er að hafa grípandi og hnitmiðaðan texta inni á síðunni og birta nokkrar aðlaðandi myndir með sem gefa greinargóða mynd af þjónustunni. Að síðustu má nefna að varast skuli að setja inn upplýsingar sem þarf að uppfæra reglulega eins og verð á vöru, opnunartíma þjónustu og nákvæmt vöruúrval.
Eigið þið skemmtileg sögukorn eða myndir til að deila með okkur?
Því meira sem við vitum um ykkur því betra! Markaðsstofan fer reglulega á ferðasýningar, er í virku samstarfi við öflugar PR skrifstofur og birtir reglulegar færslur á samfélagsmiðlum sínum þannig að því meira sem við sjáum og heyrum frá ykkur þeim mun auðveldara eigum við með að skapa úr því efni og miðla því áfram til okkar tengiliða. Hér má bæta við að markaðsstofan starfar með góðan og þægilegan myndabanka inni á Brandcenter þar sem við getum hýst myndir frá ykkur, auk þess sem þátttökufyrirtækjum býðst aðgangur bankanum með fjölbreyttum myndum og myndböndum frá Suðurlandi. Hvetjum við ykkur til að nýta það fyrir ykkar fyrirtæki, og sömuleiðis að rýna vel tengiliðaupplýsingarnar sem við sendum út til okkar aðila að loknum vinnustofum og ferðasýningum.
Að lokum var minnt á að við höfum öflugt og frábært ferðaþjónustusamfélag í gegnum Markaðsstofu Suðurlands sem stækkar og eflist eftir því sem aðilar eru duglegri að taka þátt í samtalinu. Minnum við því á aðalfund og árshátíð Markaðsstofu Suðurlands sem verður á Hótel Geysi þann 16. maí nk. og hlökkum við til að sjá sem flest þar!
Skráning er enn í fullum gangi: Skráning á aðalfund og árshátíð