Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Menntamorgunn Ferðaþjónustunnar - Gesturinn í aðalhlutverki

Hvernig upplifa gestir „gæði“ í dag og hvernig er hægt að endurspegla það í daglegu verklagi? Hvað skiptir þá mestu máli þegar kemur að upplýsingum, væntingum og þjónustu? Horfðu á upptöku frá viðburðinum hér fyrir neðan.

Á viðburði Menntamorguns ferðaþjónustunnar sem bar yfirskriftina „Gesturinn í aðalhlutverki“ sem fór fram þriðjudaginn 17. febrúar s.l. var lögð áhersla á að svara áðurnefndum spurningum.
Á fundinum var rýnt í hvernig skýrar upplýsingar, samræmd gæði og stöðug áreiðanleg þjónusta skapa trausta upplifun sem gestir treysta. Fjallað var um hvernig ferðaþjónustuaðilar geta styrkt samkeppnishæfni sína með því að endurspegla þarfir gesta í verkferlum, menningu og þjálfun starfsfólks.

Fyrirlesarar fundarins komu úr ólíkum áttum ferðaþjónustu og atvinnulífs, en það voru meðal annars þau:

-Júlíus Freyr Theodórsson, leiðsögumaður
-Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania á Íslandi
-Ólína Laxdal, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar

Viðburðurinn, sem haldinn var í samstarfi Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa landshlutanna, var öllum opinn og horfa má á upptöku af fundinum hér: