Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

FUNDI FRESTAÐ - KYNNINGARFUNDUR UM STEFNUMARKANDI STJÓRNUNARÁÆTLANIR Í VESTMANNAEYJUM

Stjórnstöð ferðamála og Ferðamálastofa, í samstarfi við Markaðsstofu Suðurlands, boða til kynningarfundar um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana (Destination Management Plans-DMP).

Vegna afleitrar veðurspár verðum við því miður að fresta fyrirhuguðum kynningarfundi í Vestmannaeyjum á morgun 8. febrúar. Ný dagsetning verður auglýst fljótlega. 

__________________________________________

Stjórnstöð ferðamála og Ferðamálastofa, í samstarfi við Markaðsstofu Suðurlands, boða til kynningarfundar um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana (Destination Management Plans-DMP). FUNDURINN ER ÖLLUM OPINN.

Á fundunum munu fulltrúar Ferðamálastofu og Stjórnstöðvar ferðamála kynna verkþætti og tímalínu verkefnisins, sem skoski ráðgjafinn Tom Buncle leiðir. Hagaðilar DMP verkefna eru breiður hópur s.s. sveitarfélög, markaðsstofur, atvinnuþróunarfélög, ferðaþjónar, ferðaklasar, upplýsingamiðstöðvar, aðrir þjónustuaðilar, öryggis- og viðbragðsaðilar, íbúar o.fl.

Kynningarfundur í Vestmannaeyjum verður haldinn miðvikudaginn 8. febrúar frá kl. 14:00 - 15:30 í Þekkingarsetri Vestmannaeyja.

Hvað er DMP?

DMP er heildstætt ferli þar sem litið er til skipulags og samhæfingar í þróun og stýringu allra þeirra þátta sem geta haft áhrif á upplifun ferðamanna á viðkomandi svæði/áfangastað, þ.m.t. þarfir gesta, heimamanna, fyrirtækja og umhverfis. DMP er sameiginleg stefnuyfirlýsing sem hefur það að markmiði að stýra uppbyggingu og þróun svæðis yfir ákveðinn tíma, skilgreina hlutverk hagsmunaaðila, tiltaka beinar aðgerðir sem hver og einn hagsmunaaðila ber ábyrgð á og hvaða bjargir/auðlindir þeir hyggjast nýta við þá vinnu.

Nánari upplýsingar er  að finna á vef Ferðamálastofu:
http://www.ferdamalastofa.is/is/troun-og-samstarf/stefnumarkandi-stjornunaraaetlanir/dmp-er-aaetlun-um-skipulag-throun-og-markadssetningu-svaedis-auk-skilgreindra-leida