Hæfnisetur ferðaþjónustunnar býður fyrirtækjum á Suðurlandi í samtal
Í október verður Hæfnisetur ferðaþjónustunnar á ferð um Suðurland og býður fyrirtækjum í ferðaþjónustu að fá heimsókn þar sem kynntar verða hagnýtar lausnir og verkfæri sem styðja við uppbyggingu mannauðs, fræðslu og starfsþróun.
10.09.2026
Markmið heimsóknanna er að ræða þarfir fyrirtækja, deila gagnlegum úrræðum og skoða hvernig Hæfnisetrið getur stutt við faglegt starf og þróun starfsfólks. Áhersla er lögð á samtal og miðlun reynslu, þar sem fyrirtæki fá tækifæri til að koma á framfæri þeim áskorunum og þörfum sem þau standa frammi fyrir.
Heimsóknin tekur um eina klukkustund og er gestgjafafyrirtækjum að kostnaðarlausu, líkt og önnur þjónusta Hæfniseturs ferðaþjónustunnar.
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að fá heimsókn geta haft samband í netfangið haefni@haefni.is eða hringt í síma 599 1404 til að finna hentugan tíma.