Frönsk blaðamannaferð sem hefur skilað sér í dýrmætri umfjöllun um Suðurlandið í erlendum miðlum
Stór blaðamannaferð sem farin var um Suðurlandið í október síðastliðnum hefur fengið afar jákvæð viðbrögð frá frönsku blaðakonunum sem sóttu svæðið heim. Voru þær hæstánægðar með skipulagið, vel útfærða dagskránna sem bauð jafnt upp á ævintýri og rólegri stundir, og ekki síst var það þjónustan og hlýlegu móttökurnar sem heilluðu.
19.02.2026
Ferðin hefur nú þegar skilað sér í umtalsverðri umfjöllun í frönskum miðlum sem má kynna sér nánar hér:
- GEO — Hér er fyrsta greinin sem birtist eftir ferðina: " Un nouveau parcours pour redécouvrir l’Islande, sur les terres de glace et de feu - Geo.fr ", og nær hún til 7 milljón lesenda á mánuði. Í henni er meðal annars fjallað um Lava Show, jeppaferðina í Þórsmörk, Hellana á Hellu og hið nýja Laugarás Lagoon ásamt gistingu á Umi Hótel, Þórsmörk Volcano Huts og Hótel Geysi.
- Lonely Planet — Grein eftir blaðakonuna Elodie sem kallast á frumheitinu " Que voir en Islande du Sud ? Volcans, geysers et paysages spectaculaires" , og nær til 300.000 mánaðarlegra lesenda. Þar eru allir samstarfsaðilar nefndir og ferðalagið fangar á áhrifaríkan hátt upplifun hópsins.
- Marie France — Greinin " A la découverte du Sud de l’Islande : aurores boréales, volcans et plages noires… ces paysages spectaculaires à voir au moins une fois dans sa vie " sem nær til 8 milljóna einstaka mánaðarlegra lesenda, og skapar sterkan sýnileika fyrir Suðurlandið.
- Courrier Cadres - Fjórða og síðasta greinin birtist á prenti í febrúarriti miðilsins Courrier Cadres sem er gefið út í 32.000 eintökum. Greinin ber yfirskriftina "Tout Feu Tout Flamme Pour l´Islande" og er upplifun á Eldfjallaleiðinni gerð góð skil í henni.
Við hjá Markaðsstofu Suðurlands þökkum öllum sem koma að ferðinni kærlega fyrir gott samstarf, má þar nefna Íslandsstofu, Icelandair og öllum þeim fjölmörgu samstarfsaðilum á Suðurlandi sem tóku einstaklega vel á móti hópnum. Má með sanni segja að ferðin hafi skilað sér í verðmætri umfjöllun og aukinni vitund franska markaðarins á því sem Suðurlandið hefur upp á að bjóða.
Nánar má lesa um fyrri frétt frá ferðinni hér: Frönsk blaðamannferð á Suðurlandi