Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

FRAMKVÆMDASJÓÐUR FERÐAMANNASTAÐA AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða vegna framkvæmda á árinu 2023. Umsóknarfrestur er til kl. 13 miðvikudaginn 5. október.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða vegna framkvæmda á árinu 2023. Umsóknarfrestur er til kl. 13 miðvikudaginn 5. október.

Hvað er styrkhæft?

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.

Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:

  • Öryggi ferðamanna.
  • Náttúruvernd og uppbyggingu.
  • Viðhaldi og verndun mannvirkja og náttúru.
  • Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda.

Hins vegar er sjóðnum ekki heimilt m.a. að:

  • Að bera rekstrarkostnað af mannvirkjum og vegna náttúruverndarsvæða eða annarra ferðamannastaða.
  • Að fjármagna framkvæmdir sem eru á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru
  • og menningarsögulegum minjum.
  • Að veita fjármagni til verkefna sem þegar er lokið.

Umsóknarferlið

Ýtarlega er farið yfir umsóknarferlið og þau skilyrði sem þarf að uppfylla á sérstakri umsóknarsíðu hér á vefnum en sjálft umsóknarformið er á island.is. Meðal annars kemur fram að umsóknir geta fallið í annan eftirfarandi flokka eftir eðli verkefnisins:

  • I - Þjónusta/aðstaða á ferðamannastað eða ferðamannaleið:
  • II - Úrbætur vegna náttúruverndar og/eða öryggis á ferðamannastað eða ferðamannaleið:

Mikilvægt að vanda umsóknir

Væntanlegir umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þau lög sem gilda um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða nr. 75/2011 og reglugerð nr. 782/2017 og vanda umsóknir sínar í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér vel gæðaviðmið sjóðsins sbr. gæðamatsblað ásamt ýmsum frekari upplýsingum sem finna má á umsóknarsíðu.

MSS býður ráðgjafaþjónustu á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarmála auk þess að aðstoða við gerð umsókna . Veitt er aðstoð við mótun hugmynda, gerð viðskiptaáætlana auk þess að leiðbeina um aðra styrki og sjóði.

Við hjá Markaðsstofunni hvetjum umsækjendur til að hafa samband ef þau vilja ræða verkefni eða fá ráðgjöf varðandi umsóknir í sjóðinn.

Opna umsóknarsíðu