Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Fjölmiðlaferð um Suðurland

Í lok september voru blaðamenn frá Bandaríkjunum í samstarfi við Íslandsstofu og MSS á ferðinni um Suðurland. Fjórir blaðamenn frá mismunandi miðlum komu í ferðina ásamt fulltrúa bandarísku almannatengslastofunnar sem Íslandsstofa er í samstarfi við. Farið var með blaðamennina um Suðurlandið og fengu þeir að kynnast náttúru, gistingu, afþreyingu, mat og menningu sem landshlutinn hefur upp á að bjóða.

Dagana 29. september til 3. október voru blaðamenn frá Bandaríkjunum í samstarfi við Íslandsstofu og MSS á ferðinni um Suðurland. Fjórir blaðamenn frá mismunandi miðlum komu í ferðina ásamt fulltrúa bandarísku almannatengslastofunnar sem Íslandsstofa er í samstarfi við. Farið var með blaðamennina um Suðurlandið og fengu þeir að kynnast náttúru, gistingu, afþreyingu, mat og menningu sem landshlutinn hefur upp á að bjóða. Ferðin tókst afar vel og var mikil ánægja með hana meðal hópsins.

Að þessu sinni voru eftirfarandi samstarfsfyrirtæki heimsótt sem við viljum þakka kærlega fyrir að taka á móti okkur,  Gróðurhúsið hótel og mathöll, Reykjadalur skáli, Hveragarðurinn, Ölverk, Megazipline, Ingólfsskáli, Hver veitingastaður, Hótel South Coast, Þjóðgarðurinn á Þingvöllum, Laugarvatn Fontana, Friðheimar, Miðbær Selfoss og Mjólkurbúið mathöll, Skyrland, UMI hótel, South Coast Adventure, Hotel Stracta, Hellarnir við Hellu, Icelandic Lava Show, Hótel Kría, Fosshótel Núpar, Glacier Lagoon, Þórbergssetur og Hótel Höfn. Að lokum flaug Ernir okkur aftur til Reykjavíkur þar sem við kvöddum hópinn.

Blaðamennirnir fengu góða kynningu á starfsemi þessara fyrirtækja og nutu gestrisni þeirra. Suðurlandið skartaði sínu fegursta á meðan á ferðinni stóð og voru margar náttúruperlur skoðaðar og myndaðar. Fjölmiðlafólkið var mjög ánægt með ferðina og verður gaman að fylgjast með umfjöllun þeirra á komandi vikum.

Hér að neðan má sjá myndir úr ferðinni.