Metþáttaka á Mannamótum!
Mannamót Markaðsstofa landshlutanna eru ekki aðeins ferðakaupstefna heldur einnig kynningarvettvangur fyrir ferðaþjónustufyrirtæki af landsbyggðinni. Þetta tækifæri leyfir fyrirtækjum að sýna fram á fjölbreytni og gæði þjónustu sinnar við fagaðila frá höfuðborgarsvæðinu og aðra gesti. Markmið viðburðarins er að skapa samtal og tengsl milli fyrirtækja og auka sýnileika landsbyggðarinnar í ferðaþjónustu á Íslandi.
Aldrei fleiri á Mannamótum
Á þessu ári fjölmenntu sunnlensk fyrirtæki að venju og 70 fyrirtæki sýndu fjölbreytt menningar- og ferðaþjónustuframboð svæðisins. Þau lögðu sitt af mörkum til að skapa líflegt og skemmtilegt andrúmsloft á Mannamótum, sem endurspeglaði kraft, sérstöðu og sjarma Suðurlands. Mettþáttaka var á Mannamót að þessu sinni, en um 1.600 manns mættu í Kórinn.
Ferðakaupstefnan hefur fest sig í sessi
Ferðakaupstefnan Mannamót Markaðsstofa landshlutanna hefur heldur betur fest sig í sessi enda var hún nú haldin í ellefta sinn. Mannamót hafa verið haldin á ári hverju frá árinu 2014 að undanskildu 2021. Mannamót Markaðsstofa landshlutanna er viðburður sem stækkar og dafnar með hverju árinu og um leið og við þökkum öllum þeim sem tóku þátt í ár hjartanlega fyrir að gera þennan viðburð eins skemmtilegan og hann er þá hlökkum við til að bjóða sýnendur og gesti velkomna aftur að ári liðnu.
Innilegar þakkir fyrir samveruna öll sem eitt!
Hér má sjá upptökur Advania Live af öllum viðtölum sem voru tekin á Mannamótum 2025