Þrír gististaðir á Suðurlandi hljóta Michelin lykla
Markaðsstofa Suðurlands fagnar því innilega að þrír af þeim gististöðum sem hlutu hina eftirsóttu Michelin lykla eru staðsettir á Suðurlandi og eru í samstarfi við stofuna. Michelin lyklar eru afar eftirsóttir og þykja mikil viðurkenning á meðal veitingastaða og gististaða um allan heim.
Þeir gististaðir sem hlutu Michelin lykilinn í október 2025 eru:



Mikilvæg viðurkenning fyrir Suðurland
Þessi alþjóðlega viðurkenning er mikilvæg fyrir alla ferðaþjónustu á Suðurlandi, ekki síst þegar kemur að markaðssetningu og kynningu á svæðinu sem áfangastaðar í heild . Hún sýnir að gæði og upplifun á svæðinu stenst samanburð við bestu áfangastaði í heiminum.
Hvað er Michelin lykill?
Michelin lykill er nýtt viðurkenningarkerfi sem Michelin Guide hefur innleitt til að heiðra gististaði sem skara fram úr í upplifun og þjónustu með svipaðri nálgun og Michelin stjörnurnar gera fyrir veitingastaði. Viðurkenningin byggir á ströngum og alþjóðlega samræmdum viðmiðum en faglegt teymi sérfræðinga frá Michelin heimsækir hótelin undir nafnleynd og metur þau út frá fimm lykilþáttum:
- Framúrskarandi arkitektúr og innanhússhönnun
- Gæði og samkvæmni þjónustu
- Karakter og persónuleiki gististaðarins
- Virði miðað við verð
- Framlag til samfélags eða staðarins
Út frá þessu er hótelum svo úthlutað einum, tveimur eða þremur lyklum:
Einn lykill: „Mjög sérstök dvöl“ — gisting sem fer fram úr væntingum.
Tveir lyklar: „Framúrskarandi dvöl“ — einstakur staður með sterkan karakter og óvenjulega upplifun.
Þrír lyklar: „Óvenjuleg dvöl“ — Gististaður á heimsmælikvarða.
Aðeins lítill hluti hótela sem eru á skrá hjá Michelin fá lykil, sem undirstrikar gæði þeirra sem ná inn á þennan lista. Óskum við lyklahöfum því enn og aftur til hamingju með þennan frábæra árangur.
Lesa má nánar um úthlutun lyklanna í frétt Michelin Guide hér