Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Mannamót markaðsstofanna 2016

Mannamót markaðsstofanna verður haldð 21. janúar 2016.

Markaðsstofur landshlutanna setja upp vinnufundinn Mannamót í Reykjavík fyrir samstarfsfyrirtæki sín 21. janúar kl. 12:00 - 17:00 í flugskýli flugfélagsins Ernis á Reykjavíkurflugvelli.

Mannamót markaðsstofanna er hugsað sem kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á Höfuðborgarsvæðinu. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamótum gefst kostur á kynna sér það sem mismundi landshlutar eru að bjóða uppá með áherslu á vetrarferðamennsku.

Skráning og gjald

Þátttökugjald fyrir hvert fyrirtæki er kr. 12.500. Einungis samstarfsfyrirtæki markaðsstofanna geta tekið þátt sem sýnendur í Mannamóti 2016.

Hægt er að skrá sig hér

ATH. Skráningu lýkur 15. janúar 2016