Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Áfangastaðurinn Ísland - markaðssetning, viðhorf og samstarf

Íslandsstofa og Markaðsstofa Suðurlands boða til upplýsingafunda um samstarf og markaðssetningu áfangastaðarins Íslands.

Íslandsstofa og Markaðsstofa Suðurlands boða til upplýsingafunda um samstarf og markaðssetningu áfangastaðarins Íslands.

Á fundunum mun Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður, ferðaþjónustu og skapandi greina fara yfir hvernig verið er að vinna markaðsstarfið á erlendum mörkuðum á þessu ári ásamt því að ný herferð Ísland – allt árið verður kynnt. Farið verður einnig stuttlega yfir nýja viðhorfs- og vitundarannsókn um Ísland. Dagný H. Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands mun kynna áherslur markaðsstofunnar í markaðssetningu og samstarfi.

Í lok funda gefst tími til umræðna.

Fundirnir fara fram miðvikudaginn 20. maí á eftirtöldum stöðum :

  • Hveragerði - Hótel Örk kl. 9:00-10:30 – boðið uppá léttan morgunverð
  • Hellu – Hótel Stracta kl. 12:00-13:30 – boðið uppá súpu og brauð

 Vinsamlegast skráið þátttöku hjá Markaðsstofu Suðurlands á netfanginu: info@south.is eða í s. 560-2044