Aðalfundur og árshátíð 2026
Dagskrá:
12:30-14:00 Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands
Súpa verður í boði Markaðsstofunnar frá kl. 12.
14:00-16:00 Vinnustofa/erindi (Nánar auglýst síðar)
16:00-18:00 Kynningarferð um nærsvæðið
Hristum hópinn saman og kynnum okkur nýjungar á svæðinu (Nánar auglýst síðar).
19:00 Kvöldið hefst með fordrykk á Einsa Kalda
Við hefjum kvöldið með fordrykk í boði Markaðsstofu Suðurlands áður en setjumst niður og njótum forréttar og aðalréttar á hinum margrómaða veitingastað Einsa Kalda. Að borðhaldi loknu heldur gleðskapurinn áfram á veitingastaðnum GOTT þar sem í boði verður sætur biti og skemmtilegt spjall.
Skráning:
Hvar: Akóges salur og Einsi Kaldi
Hvenær: 7. maí
Verð: 16.900 krónur á mann. Innifalið í verði eru kaffiveitingar, vinnustofa, kynningarferð og þriggja rétta kvöldverður.
Gisting:
- Gestir skulu sjálfir bóka gistingu hjá Hótel Vestmannaeyjum. Hótelið hefur tekið frá herbergi til 10. apríl. Eftir það fara herbergin í almenna sölu svo það er um að gera að bóka með góðum fyrirvara og taka fram að gistingin sé í samstarfi við Markaðsstofu Suðurlands. Sendið tölvupóst á booking@hotelvestmannaeyjar.is til að bóka herbergi.



Við hjá Markaðsstofunni hlökkum mikið til að sjá ykkur og gleðjast með ykkur :)