Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands 2026
Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands verður haldinn fimmtudaginn 7. maí næstkomandi á Stracta Hótel Hellu, klukkan 12:30.
31.03.2026
Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands verður haldinn fimmtudaginn 7. maí næstkomandi á Stracta Hótel Hellu, klukkann 12:30.
Dagskrá:*
- Formaður opnar fund og tilnefnir fundarstjóra
- Fundarstjóri kynnir fyrirkomulag fundar og kosninga
- Kynning á frambjóðendum til stjórnarsetu, kosning opnar
- Markaðsstofa Suðurlands - yfirlit yfir árið 2025 og helstu verkefni 2026 - Ragnhildur Sveinbjarnardóttir, framkvæmdastjóri
- Ársreikningur 2025, yfirferð – Sveinn Hreiðar Jensson, formaður stjórnar
- Kosningu lýkur, talning atkvæða – Kaffihlé
- Ný stjórn og skoðunarmenn ársreiknings kynnt
- Önnur mál
*Fyrirvari um að dagskrá getur breyst.
Erindi og umræður
- Vala Hauksdóttir - Áherslur Suðurlands í ferðaþjónustu
- Heiðdís Einarsdóttir - kynning á nýju verkefni um Söguslóðir Suðurlands