Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands 2024
Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands verður haldinn þann 19. apríl næstkomandi á Hótel Selfossi, klukkan 13:00.
26.02.2024
Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands verður haldinn þann 19. apríl næstkomandi á Hótel Selfossi, klukkann 13:00.
Dagskrá:*
- Formaður opnar fund og tilnefnir fundarstjóra
- Fundarstjóri kynnir fyrirkomulag fundar og kosninga
- Kynning á frambjóðendum til stjórnarsetu, kosning opnar
- Markaðsstofa Suðurlands - yfirlit yfir árið 2023 og helstu verkefni 2024 - Ragnhildur Sveinbjarnardóttir, framkvæmdastjóri
- Ársreikningur 2023, yfirferð – Katrín Sigurðardóttir, formaður stjórnar
- Kosningu lýkur, talning atkvæða – Kaffihlé
- Ný stjórn og skoðunarmenn ársreiknings kynnt
- Önnur mál
*Fyrirvari um að dagskrá getur breyst.
Fundastjóri verður Fjóla Steindóra Kristinsdóttir.
Ritari fundarins verður Nejra Mesetovic, verkefnastjóri Markaðsstofu Suðurlands.
Fræðsluerindi og árshátíð Markaðsstofunnar verða haldin að loknum aðalfundi - sjá nánar um dagskrá og upplýsingar um skráningu er að finna hér.