Fláajökull
Fláajökull er skriðjökull undan Vatnajökli, um 40 km vestur af Höfn í Hornafirði. Beygt er af Þjóðvegi 1 milli bæjanna Hólms og Lambleiksstaða en þaðan liggur 6 km langur malarvegur að bílastæði við jökulinn.
Umhverfi Fláajökuls sýnir glöggt hvernig landið hefur mótast af jöklinum en hann hefur hopað um það bil tvo kílómetra síðan um aldamótin 1900. Merktar gönguleiðir eru á svæðinu ásamt fræðsluskiltum um sögu og jarðfræði svæðisins.
Einnig er hægt að komast að Fláajökli frá skógræktinni í Haukafelli en þaðan liggur um 2 km gönguleið að jöklinum. Í Haukafelli er rekið tjaldsvæði á sumrin. Athugið að óheimilt er að tjalda eða gista á bílastæðinu við Fláajökul yfir nótt.