Fyrir rétt um 100 árum bjuggu íslenskar fjölskyldur í þessum hellum. Þær sváfu hér, elduðu hér, ólu upp börnin sín hér. Þær byggðu upp líf í klettinum sjálfum. Og í dag geturðu gengið inn í þetta líf og fundið hvernig það var.
Leiðsögnin er einföld og persónuleg. Við förum með þig inn í hellana, segjum sögurnar, sýnum gamlar myndir og gefum þér tíma til að skoða þig um. Þú munt læra hvernig fólk lifði af hér með nánast ekkert nema náttúruna með sér.