Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Þórbergssetur

Í Þórbergssetri er veitingasala,gestamóttaka, salerni og sýningarsalir.   Sýning Þórbergsseturs er fjölbreytt upplifunarsýning er tengist ævi og verkum skáldsins, en einnig sögu íslensku þjóðarinnar. Sjá má breytingar og þjóðlifsmyndir frá frumstæðu bændaþjóðfélagi yfir í bæjarlíf og búsetu í ört vaxandi höfuðborg. Textar úr verkum Þórbergs varða leiðina á fallega hönnuðum ljósaskiltum, en einnig er hægt að fá hljóðleiðsögn með viðbótarefni. Þannig er sýningin sambland af fræðsluefni, safni og sagnaskemmtan og gengið er inn í leikmyndir þar sem reynt er að ná andblæ liðinna ára og njóta um leið stórbrotinna lýsinga meistarans sem leiðsögn um staðinn. Vakin er athygli á að sýningin höfðar einnig mjög vel til barna og unglinga. Hópar eða fjölskyldur geta bókað leiðsögn um Þórbergssetur þar sem heimamenn fræða gesti um lífið í Suðursveit  og hverning sögusvið bóka Þórbergs opnar sýn inn í horfna veröld liðins tíma.

Í Þórbergssetri er þægilegur veitingasalur með vínveitingaleyfi og sæti fyrir 80 - 100 manns. Hægt er að fá veitingar alla daga allt árið um kring. Yfir daginn er alltaf kaffi á könnunni og heimabakað brauð og kökur, en einnig kjötsúpa og ýmsir smáréttir m.a. úr Jöklableikju frá Hala. Á sumrin er í gildi matseðill fyrir hópa og einstaklinga á sanngjörnu verði í hádeginu, kjötsúpa, bleikjuréttir og kaffi. Nauðsynlegt er að panta í síma 478 1078 eða á netfangið hali@hali.is. Á kvöldin frá kl 18:30 – 21 er hægt að fá kvöldmat alla daga. Á matseðli er hefðbundinn íslenskur matur, bleikja og lambakjöt. 

Þórbergssetur

Þórbergssetur

Í Þórbergssetri er veitingasala,gestamóttaka, salerni og sýningarsalir.   Sýning Þórbergsseturs er fjölbreytt upplifunarsýning er tengist ævi og verku
Glacier Adventure

Glacier Adventure

GLACIER ADVENTUREGlacier Adventure er fjölskyldufyrirtæki sem er staðsett á Hala í Suðursveit, aðeins 12 km frá Jökulsárlóni. Glacier Adventure sérh
Hali

Hali

Hali í Suðursveit er þekktur sögustaður, en þar fæddist Þórbergur Þórðarson rithöfundur (1888 - 1974). Hali er aðeins um 13 km austan Jökulsárlón á Br
Gerði Gistiheimili

Gerði Gistiheimili

- Gerum tilboð- Náttúruperlur- Um 15 mínútna akstur á Jökulsárlón- Sögustaðir - Persónuleg þjónusta - Jöklaferðir - Hentar einstaklingum og hópum  Gis

Aðrir (4)

Blue Iceland Suðursveit ehf. Reynivellir 781 Höfn í Hornafirði 694-1200
Niflheimar ehf. Breiðabólsstaður 781 Höfn í Hornafirði 863-4733
Reynivellir II Reynivellir 2 781 Höfn í Hornafirði 478-1905
Skyrhúsið HI Hostel Hali 781 Höfn í Hornafirði 478-8989