Hrunalaug er einstök náttúrulaug í fögru og friðsælu sveitaumhverfi Suðurlands. Hlýleg umgjörð laugarinnar ásamt kyrrðinni í náttúrunni skapar sérstaka stemningu þar sem gestir geta staldrað við, slakað á og notið þess að vera í návist íslenskrar náttúru. Saga Hrunalaugar er ekki síður merkileg en umhverfið.
Hrunalaug er á skrá yfir friðaðar sögulegar minjar á Íslandi og hefur þjónað heimafólki í margar kynslóðir. Laugarnar eru þrjár og á hver þeirra sína sögu. Sú elsta, Þvottalaugin, er frá árinu 1890 og var áður notuð af heimilisfólki til þvotta og baða. Fjárbaðið og gamli skúrinn við það eru helstu kennileiti staðarins. Fjárbaðið var byggt árið 1935 og var notað af bændum til að baða sauðfé. Þriðju lauginni var svo bætt við árið 2023 og fékk hún nafnið Ferðamannalaugin. Saman veita laugarnar þrjár einstaka innsýn í íslenskt sveitalíf og menningararf.
Árið 2026 var opnuð ný og glæsileg búningsaðstaða við Hrunalaug. Hún er byggð inn í hlíðina fyrir aftan laugarnar og fellur vel að landslaginu. Að utan minnir hún á hellisop, en þegar inn er komið tekur á móti gestum hlýleg og notaleg aðstaða með öllu því helsta sem þarf til að gera heimsóknina sem þægilegasta. Sturturnar eru undir glerþaki sem hleypir náttúrulegri birtu inn í hellinn og gerir sturtuferðina að sérstakri upplifun. Ef ert að leita að baðupplifun sem skilur eftir sig óvenjulega og ánægjulega minningu þá er Hrunalaug rétti staðurinn.