Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Grímsborgir veitingastaður

- Þjónusta

Hótel Grímsborgir er með glæsilegan veitingastað og bar í aðalbyggingu
hótelsins. Staðurinn, sem er innréttaður í fáguðum sveitastíl er afar rúmgóður
og tekur allt að 240 manns í sæti. Veitingastaðurinn er opinn daglega frá 7:00
til 22:00.



Á A la Carte matseðlinum okkar má finna fjölbreytt úrval af íslenskum og
alþjóðlegum gourmet réttum og fínum vínum. Hið höfðinglega morgunverðarhlaðborð
er staðsett í sal veitingarstaðarins og er ávallt innifalið í gistingu á
hótelinu en opið fyrir alla. Á hlaðborðinu má finna heimabakað brauð og
bakkelsi, álegg, ferskt grænmeti, marmelaði og sultu, jógúrt, súrmjólk, músli
og ferska ávexti, sem og heita rétti. Morgunverðarhlaðborðið er opið alla daga
frá kl. 7:00 – 10:00.


Tveir salir eru standa til boða, annarsvegar 70
manna fundarsalur og hinnsvegar salur sem rúmar 130 manns til borðs.
Salirnir eru búnir skjávarpa og sýningartjaldi ásamt hljóðkerfi fyrir tal og tónlist.


Einstaklega góð aðstaða sem henta mjög vel fyrir hverskyns fundi,
ráðstefnur, samkomur og veislur.


Öll aðstaða er eins og best verður á kosið.
Gott aðgengi, rúmgott anddyri setustofa með arineld og notalegheitum.


Barinn okkar er opinn alla daga og við erum með happy hour alla daga frá kl
16:00 – 18:00.


Hringið í síma 555 7878 eða sendið okkur e-mail sales@keahotels.is og
fáið nánari upplýsingar um verð og aðstöðuna hjá okkur.


 

Grímsborgir veitingastaður

Grímsborgir veitingastaður

Hótel Grímsborgir er með glæsilegan veitingastað og bar í aðalbygginguhótelsins. Staðurinn, sem er innréttaður í fáguðum sveitastíl er afar rúmgóðurog
Hótel Grímsborgir

Hótel Grímsborgir

Hótel Grímsborgir er glæsilegt hótel staðsett á glæsilegum staðí kjarrivöxnu landi við Sogið í Grímsnesi.Hótelið býður upp á gistingu í 44 standard he

Aðrir (3)

Benjamin Charles Guy Nicoletta Neðan-Sogsvegur 44D 805 Selfoss 775-0729
Litli-Háls Litli Háls 805 Selfoss 893-9757
Álftavík Álftavík 805 Selfoss 822-2202