Heinaberg
Heinaberg er jökulmyndað svæði við sunnanverðan Vatnajökul. Þar geta gestir skoðað Heinabergsjökull og Heinabergslón en svæðið er hluti af Vatnajökulsþjóðgarði. Beygt er af Þjóðvegi 1 milli bæjanna Skálafells og Flateyjar og ekið eftir 8 km löngum malarvegi þar til komið er að bílastæði.
Á Heinabergi er afar fallegt og mikil jöklasýn. Merktar gönguleiðir eru á svæðinu, þar á meðal stutt leið frá bílastæðinu að Heinabergslóni, með fræðsluskiltum um hop jökla. Hreindýr sjást stundum á svæðinu, sérstaklega frá hausti og fram á vor.
Vegurinn að Heinabergi er grófur og hentar aðeins fjórhjóladrifnum bílum. Árstíðabundin ferðaþjónusta er við Heinabergslón en á staðnum er salerni sem opið er allan ársins hring.
Athugið veður og færð áður en lagt er af stað.