Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Efsti-Dalur II

- Kaffihús

Vorið 2013 opnaði ferðamannafjósið í Efstadal veitingastað og ísbúð, þar sem fyrir var gistiheimili og mjólkurbú. Þar geta gestirnir fylgst með sveitastörfum, séð kýr og kálfa í sínu daglega umhverfi og fylgst með þegar verið er að framleiða hinar ýmsu mjólkurafurðir, svo sem ís, skyr, fetaost.

Hægt er að setjast niður á kaffihúsinu Íshlöðunni og gæða sér á nýbakaðri vöfflu og heimagerðum ís, kaffi og köku, eða fengið sér máltíð á veitingastaðnum Hlöðuloftinu á annarri hæð hússins þar sem þemað er „Beint frá býli“ og notast er við afurðir frá bænum og úr nágrenninu. Verið velkomin að koma og fylgjast með fjölskyldunni að störfum!

Opnunartíma má sjá á facebook síðu Efstadals

Hestaleigan opin maí – september.  

 

 

Efsti-Dalur II

Efsti-Dalur II

Vorið 2013 opnaði ferðamannafjósið í Efstadal veitingastað og ísbúð, þar sem fyrir var gistiheimili og mjólkurbú. Þar geta gestirnir fylgst með sveita
Brúará

Brúará

Mikil bergvatnsá er rennur á mörkum Biskupstungna annars vegar og Laugardals og Grímsness hins vegar og fellur í Hvítá nokkru fyrir neðan Skálholt, ve

Aðrir (1)

Birkihof Lodge Eyrarbraut 11 801 Selfoss 778-9052