Hótel Grímsborgir er glæsilegt hótel staðsett á glæsilegum stað
í kjarrivöxnu landi við Sogið í Grímsnesi.
Hótelið býður upp á gistingu í 44 standard herbergi, 24 superior herbergi, 25
deluxe herbergi, 6 junior svítum og 10 gallery svítum. Gallery svíturnar eru
með einkaverönd með heita potti. Einnig er hægt að bóka heilt Deluxe hús með 5
rúmgóðum tveggja manna herbergjum. Í húsunum er stórt sameiginlegt rými með
stórum ísskáp, stóru borðstofuborði, notalegri setustofu með stórum flatskjá og
einka heitum potti á einkaverönd.
Boðið er uppá einstaklega góða veislusali og fundarsali í fallegri náttúrunni í
Grímsnesi. Umhverfið er friðsælt og fallegt og aðeins undir klukkutíma keyrsla
frá Reykjavík við Gullna hringinn.
Kjörinn staður til að halda upp á afmælið, brúðkaupsveislu,
ættarmót og ýmiskonar mannfagnaði.
Fullkomið veislueldhús og meistarakokkar sem galdar fram allt frá smáréttum og
kaffihlaðborðum til margrétta Gala-veislumáltíða. Í húsinu eru góðir
skjávarpar, sýningartjöld og hljóðkerfi fyrir tal og tónlist.
Hringið í síma 555 7878 eða sendið okkur e-mail sales@keahotels.is
og fáið nánari upplýsingar um verð og aðstöðuna hjá okkur.