Hótel Selfoss er staðsett á bökkum Ölfusá við nýjan miðbæ Selfoss í hjarta Suðurlands.
Á hótelinu eru 139 herbergi, veitingastaður, bar og heilsulind. Herbergin eru vel búin öllum þægindum með gervihnattasjónvarpi, háhraða tölvutengingu, minibar, hárþurrku og öryggishólfi.
Fullkomin veislu, funda og ráðstefnuaðstaða er í eldri hluta hótelsins sem tekur allt að 450 manns í sæti.
Á meðan á dvöl þinni stendur getur þú slakað á í Riverside spa. Fyrir lítið gjald er hægt að kaupa aðgang að heilsulindinni og slaka á í hefðbundnu íslensku gufubaði, sánu og heitum potti.
Veitingastaðurinn Ós á Hótel Selfossi býður upp á vandaðan mat í afslöppuðu og notalegu umhverfi. Yfirkokkurinn Andri Björn Jónsson hefur sett saman fjölbreyttan matseðil þar sem áhersla er lögð á gott hráefni og bragðgóða rétti fyrir ólík tilefni. Ós er fyrir jafnt heimafólk sem gesti hótelsins. Úr veitingasalnum er gott útsýni yfir Ölfusá og stórir gluggar hleypa birtu inn og tengja veitingastaðinn við umhverfið.
Bíóhúsið sem er staðsett á hótelinu er glæsilegt með vönduðum sætum og fullkomnu hljóð- og myndkerfi. Með Bíóhúsinu eru 2 ráðstefnusalir til viðbótar fyrir alls 180 manns.