Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Starfsfólk Markaðstofunnar á allsherjarfund landshlutasamtaka sveitarfélaga og Byggðastofnunar

Starfsfólk Markaðsstofu Suðurlands sótti dagana 11.–13. nóvember allsherjarfund landshlutasamtaka sveitarfélaga og Byggðastofnunar sem haldinn var í Borgarnesi. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi stóðu að fundinum.

Á fundinum hittist starfsfólk landshlutasamtaka, markaðsstofa landshlutanna, Byggðastofnunar og annarra sem vinna að byggðaþróun um allt land. Fundurinn hófst í Hjálmakletti, mennta- og menningarhúsi Borgarbyggðar, þar sem fjallað var um stoðkerfi byggðaþróunar. Erindi fluttu fulltrúar Byggðastofnunar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins og Háskóla Íslands. Þar var meðal annars borið saman hvernig stuðningi við byggðaþróun er háttað á Norðurlöndunum og í Skotlandi.

Á öðrum degi voru kynnt áhugaverð byggðaverkefni víðs vegar af landinu, þar á meðal Flugklasinn á Norðurlandi, Gullkistan á Vestfjörðum og Nýsköpunarstefna Suðurlands. Markaðsstofur landshlutanna unnu einnig saman í vinnustofum. Þar var farið yfir þau verkefni sem eru í gangi, helstu áskoranir og hvar tækifæri liggja til frekara samstarfs milli landshluta.

Fyrirtæki og stofnanir í nærumhverfi Borgarness voru heimsótt og fékk hópurinn kynningu á starfsemi þeirra. Meðal annars var komið við í Landnámssetrinu, þar sem fram fór samtal um menningu og ferðaþjónustu, í Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri og í Kraumu.

Fundurinn var bæði gagnlegur og ánægjulegur. Áhugaverð erindi voru flutt og gott tækifæri gafst til að styrkja tengslin við samstarfsfólk í öðrum landshlutum. Markaðsstofa Suðurlands þakkar Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og gestgjöfum í Borgarbyggð fyrir góðar móttökur.

Starfsfólk Markaðsstofunnar f.v.: Ása Valdís Árnadóttir, sem starfar tímabundið að sérverkefnum, Vala Hauksdóttir, verkefnastjóri áfangastaðaáætlunar, og Hrafnhildur Árnadóttir, verkefnastjóri miðlunar.

 

 


Unnur Brá Konráðsdóttir, Sveitarstjóri Borgarbyggðar hélt erindi fyrir fundargesti í Landnámssetrinu.

Margrét Polly Hansen kynnti Nýsköpunarstefnu Suðurlands fyrir fundargestum.