Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Töfrar jöklanna - þverfagleg nálgun

18.-19. september

Upplýsingar um verð

Þátttökugjald kr. 5000
Spennandi og áhugaverð ráðstefna framundan á Kirkjubæjarklaustri !
Dagana 18. og 19.september verður haldin ráðstefna á Kirkjubæjarklaustri.- Töfrar jöklanna - þverfagleg nálgun.
Að ráðstefnunni standa Rannsóknarssetur HÍ á Höfn, Náttúrstofa Suðausturlands, Vatnajökulsþjóðgarður og Kirkjubæjarstofa

Kynntar verða meðal annars rannsóknir á jöklum, eldvirkni og loftslagsbreytingar, hvernig jöklar hafa þróast í gegnum tíðina og landið sem kemur í ljós þegar þeir hopa. Einnig verður horft til lífsins í og við jökla, allt frá örsmáum lífverum til gróðurs sem nemur nýtt land.

Jöklarnir verða jafnframt skoðaðir út frá menningu, sögu, bókmenntum og listum. Rætt verður um tengsl manns og jökuls, hvernig jöklar hafa birst í þjóðsögum og skáldskap og hvernig listir geta hjálpað okkur að upplifa og skilja þær miklu breytingar sem nú eiga sér stað í náttúrunni.

Ráðstefnan gefur þannig fjölbreytta mynd af jöklunum – sem náttúrufyrirbærum, lifandi vistkerfum, menningarlegum táknum og mikilvægum hluta af framtíð Íslands.

 Hún býður upp á tækifæri til að kynnast jöklunum betur, frá ólíkum sjónarhornum og með ólíkar spurningar að leiðarljósi.

 

 

.

 

GPS punktar

N63° 47' 20.577" W18° 3' 0.610"

Staðsetning

Félagsheimilið Kirkjuhvoll

Sími