Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Rústir alþingis

2. júlí kl. 20:00-22:00
Þingvellir við Öxará eru mikilvægasti sögustaður landsins. Margt hefur verið ritað um alþingisstaðinn forna í aldanna rás, en jafnframt því hafa sjálfir þingheyjendur skrifað sína eigin sögu í landið – og hún leynist beint fyrir framan nefið á okkur.

Gunnar Grímsson, starfsmaður þjóðgarðsins á Þingvöllum og fornleifafræðingur, segir sögu Þingvalla út frá sjónarhorni fornleifanna sem þar eru. Staldrað verður við hjá nokkrum af verðmætustu og dularfyllstu fornleifum landsins, sem margar eru á fárra vitorði og geta varpað nýju ljósi á helgistað þjóðarinnar.
 
Gangan hefst við gestastofu þjóðgarðsins á Haki kl. 20:00 þann 2. júlí næstkomandi. Gangan er auðveld, um 1,5 km löng og tekur um einn og hálfan klukkutíma. Ókeypis er í gönguna

GPS punktar

N64° 15' 19.784" W21° 7' 56.850"

Staðsetning

Gestastofa Hak, Þingvellir

Sími