Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Krílafjör á foreldramorgni í Emil&Lína á Selfossi

27. ágúst kl. 11:00-12:00
,,Krílafjör tónlistartímar eru ætlaðir börnum á aldrinum 3 mán - 2 ára ásamt foreldrum þeirra.
Í tímanum munum við syngja lög og spila saman ásamt því að efla taktskyn, málþroska og tóneyra. Einnig eru þetta frábærir tímar fyrir foreldra að koma með börnin sín, hittast og gera eitthvað skemmtilegt saman með fleirum börnum og foreldrum.''🎻
Krílafjör er alltaf jafn vinsælt og við hlökkum til að bjóða Chrissie Telmu frá Listaakademíunni aftur velkomna á foreldramorgun okkar á Selfossi🪇
Emil&Lína býður foreldrum að koma með börnin á vikulega foreldramorgna í verslun sinni á Selfossi þar sem er ávallt boðið upp á veitingar og kaffi, leikföng fyrir börnin og góðan félagsskap fyrir foreldrana. Af og til er sérstök dagskrá og í þetta sinn er það yndislegur tónlistartími fyrir börnin. Húsið opnar samkvæmt venju kl 10 en Krílafjör hefst kl 11, mætið endilega tímanlega❤️
Verið hjartanlega velkomin, við hlökkum til að taka á móti ykkur🥰

Staðsetning

Larsenstræti 2

Sími