Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hverafugl - Tónlistarhátíð í Hveragerði

26.-28. júní

Upplýsingar um verð

Frá 3.000 kr. - 12.000 kr.

Hverafugl er ný sumartónlistarhátíð í Hveragerði sem fer fram dagana 26. til 28. júní 2026. Hátíðin leggur áherslu á samtímatónlist en er um leið lifandi vettvangur þar sem mismunandi tónlistarstefnur og listform mætast. Dagskráin er unnin í nánu samstarfi við heimafólk og stór hluti hennar tengist svæðinu, sögu þess, náttúru og mannlífi. Tónleikar og viðburðir fara fram víðsvegar um Hveragerði, gjarnan á óhefðbundnum og spennandi stöðum sem skapa einstaka nálægð milli flytjenda, áhorfenda og umhverfis.

Setning hátíðarinnar fer fram í Blómaborg þar sem m.a. kórinn Hverafuglar kemur fram. Fyrsta kvöldið verða tónleikar í Grunnskólanum í Hveragerði þar sem koma fram CAPUT undir stjórn Guðna Franzsonar og einsöngvarinn Svanlaug Jóhannsdóttir. Þau flytja stórvirkið Stokkseyri eftir Hvergerðinginn Hróðmar Inga Sigurbjörnsson en verkið var samið við ljóð Ísaks Harðarsonar. Á tónleikunum munu einnig hljóma verk eftir nemendur Hróðmars, þ.m.t. verk eftir Báru Gísladóttur, Gísla Magnússon, Herdísi Stefánsdóttur og Snorra Hallgrímsson.

Morguninn eftir verður haldið í Hveragerðiskirkju þar sem Pétur Nói Stefánsson, Jónas Sigurðsson og Halldór Smárason bjóða upp á morgunflæði á tónleikunum Alþýðan og orgelið. Seinna um daginn má upplifa ljóðagjörning hjá árbakkanum við Varmá hjá Þetta líður hjá steininum. Þar munu Björg Brjánsdóttir flautuleikari og Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir söngkona spinna út frá ljóðum Elísabetar Jökulsdóttur. Hljóðinnsetning sem er samstarfsverkefni Ingibjargar Ýrar Skarphéðinsdóttur og Kristofers Rodriguez Svönusonar mun opna í Bananahúsi Garðyrkjuskólans á Reykjum og Njörður Sigurðsson mun leiða gesti hátíðarinnar í sögugöngu um Hveragerði. Dagurinn mun síðan enda á tónverkinu áttir eftir Lilju Maríu Ásmundsdóttur í flutningi Heiðu Árnadóttur.

Lokadagurinn hefst á tónleikum í Sundlauginni Laugaskarði þar sem Strokkvartettinn Siggi mun flytja verk innblásin af vatni, sundmenningu og hverum. Á dagskránni verða verk eftir Ellis Ludwig-Leone, Halldór Smárason og Unu Sveinbjarnardóttur. Því næst mun KIMI Ensemble flytja ný verk eftir tónsmíðanemendur Listaháskóla Íslands í Listasafni Árnesinga. Eftir ferðalag um mismunandi stíla bindur hin sögufræga kammerpopphljómsveit Melchior endahnút á hátíðina með miklum tónlistarbræðingi. Tónleikarnir kallast á við opnunartónleikana með Hvergerðinginn Hróðmar Inga Sigurbjörnsson í broddi fylkingar.

Listrænt teymi Hverafugls skipa Halldór Smárason, Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir og Lilja María Ásmundsdóttir.

Hátíðin er styrkt af Tónlistarsjóði, Uppbyggingarsjóði Suðurlands, Hveragerðisbæ, Hótel Örk og Kjörís.

Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á vefsíðunni: https://www.hverafugl.com/dagskra-2026

Miðasala: https://www.midix.is/is/hverafugl-allir-26-28-jun-2026/eid/1090/group/1

Staðsetning

Hveragerði