Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Grímsævintýrin á Borg - 100 ára tombóla!

22. ágúst kl. 13:00-16:00

Upplýsingar um verð

Frítt
Árlega sveitahátíðin Grímsævintýri verður 22. ágúst 2026.
Í ár höldum við upp á 100 ára afmæli Tombólunnar en hún hefur verið haldið árlega frá árinu 1926. Tombólan á sér einstaka sögu og er einn elsti starfandi góðgerðaviðburður sinnar
tegundar á landinu. Það eru fáir viðburðir sem státa af jafn langri samfellu og því leggjum við sérstaka áherslu á að gera henni hátt undir höfði á þessu tímamótaári og gera hana stærri og veglegri en nokkru sinni fyrr.

Auk Tombólunnar verður að vanda markaður, kaffihús, klifurveggur fyrir börnin og ýmis skemmtiatriði.

Nánari dagskrá verður uppfærð síðar - takið frá daginn og kíkið á Borg!

Grímsævintýrin eru árleg sveitahátíð sem sameinar íbúa, brottflutta, sumargest sumargesti og aðra velunnara svæðisins. Viðburðurinn er opinn öllum og aðgangur er ókeypis. Þar mætast kynslóðir á fjölskylduskemmtun þar sem lögð er áhersla á amveru, gleði og samfélagslega þátttöku.

Grímsævintýrin eru haldin af Kvenfélagi Grímsneshrepps en félagið var stofnað árið 1919 og er eitt af burðarstoðum samfélagsins í sveitarfélaginu.

GPS punktar

N64° 4' 31.266" W20° 45' 59.628"