Skálafell – Hjallanes
Skálafell er útivistarsvæði á milli Jökulsárlóns og Hafnar í Hornafirði, og hluti af Vatnajökulsþjóðgarði. Í skálafelli eru merktar gönguleiðir og jöklasýn en svæðið er fáfarnara en nærliggjandi áfangastaðir innan þjóðgarðsins.
Ein af aðal gönguleiðum Skálafells er 8-km hringleið um Hjallanes sem leiðir göngufólk að jaðri Vatnajökuls. Göngubrú yfir ána Kolgrímu tengir Skálafell einnig við útivistarperluna Heinaberg.
Skálafell er nálægt Þjóðvegi 1 og er tilvalinn áningarstaður á ferðinni milli Jökulsárlóns og Hafnar í Hornafirði. Athugið veðurspá og aðstæður á stígum áður en lagt er í gönguferðir.