Rúmlega 178 milljónir til innviða á ferðamannastöðum á Suðurlandi
Fimm verkefni á Suðurlandi hlutu samtals 178.567.403 krónur úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2026. Úthlutunin er hluti af nær 490 milljóna króna styrkveitingu til 18 verkefna um land allt þar sem sérstök áhersla var lögð á öryggi ferðamanna á fjölsóttum ferðamannastöðum.