Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Jónsmessuhátíð Eyrarbakka 2022

June24 - 25

Nú er sumarið komið með alla sína gleði og tilhlökkun þar sem það eru engar samkomutakmarkanir í augsýn.
Helgina 24.-25. júní nk. verður haldin hin árlega Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka. Vegna samkomutakmarkana í fyrra var
tímasetningu brennunar flýtt til kl. 20:00 og skapaðist skemmtileg fjölskyldustemning í kringum brennuna í fjörunni.

Svo mikil var ánægja fjölskyldufólks með breytinguna að ákveðið var að halda í tímasetninguna og mun því brennan hefjast kl. 20:15 á laugardagskvöldinu.
Brennustjóri hátíðarinnar í ár er engin annar en eldgleypirinn Andri Geir Jónsson og mun sjá til þess að ungir sem aldnir muni skemmta sér konunglega á Brennunni.
Trúbadorinn Ármann Magnús Ármannsson mun halda uppi stuðinu þar til síðustu logarnir slokna og mannskapurinn heldur heim á leið eða á Rauðahúsið fram á rauða nótt.
Að sjálfsögðu verður fjölbreytt fjölskyldudagskrá þessa daga sem hefst á föstudaginn kl. 16:00 með hjólreiðaskoðun Slysavarnardeildarinnar Bjargar og Lögreglunar við Garðstún og
í beinu framhaldi verður hinn árlegi Jónsmessubolti og að þessu sinni verður keppt í kíló. Markmið hátíðarinnar hefur alltaf verið að gleðja unga sem aldna án þess að fólk þurfi sífellt að
taka upp veskið.

Fjölskyldudagskráin er við Garðstún og söfnin á Eyrarbakka á laugardaginn frá kl. 12-15 og nær hámarki þegar Sprite Zero Klan tryllir líðinn í garðinum við Húsið.

Dagskrána má finna inn ár arborg.is, facebook- og/eða instagramsíðu jónsmessuhátíðarinnar.

GPS points

N63° 51' 46.842" W21° 8' 53.308"

Location

Eyrarbakki, Sveitarfélagið Árborg, Southern Region, 820, Iceland