Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Samtal um aðgerðaáætlun ferðamála til 2030 - fundir á Hvolsvelli og Höfn

Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra býður til opinna umræðu- og kynningarfunda um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030. Fundirnir eru haldnir víðs vegar á landinu og má sjá dagskrá hér fyrir neðan.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra býður til opinna umræðu- og kynningarfunda um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030.

Fundirnir eru haldnir víðs vegar á landinu. Suðurlandsfundirnir verða á Hvolsvelli 21.febrúar og Höfn í Hornafirði 6.mars!

Drög að aðgerðaáætlun ferðamálastefnu 2030 voru unnin í víðtæku samráði stjórnvalda við fjölda hagaðila. Þau eru byggð á vinnu sjö starfshópa og stýrihóps og voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í nóvember á síðasta ári.

Ferðaþjónustuaðilar og áhugasöm um þróun ferðaþjónustunnar hjartanlega velkomin!

Vinsamlega skráðu mætingu hér fyrir neðan.

Sjá nánar á ferdamalastefna.is

Smelltu hér til að skrá þig.