Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

75 Sunnlensk fyrirtæki á Mannamótum 2024

Ferðakaupstefnan Mannamót Markaðsstofa landshlutanna voru haldin í Kórnum í Kópavogi 18. janúar. Þátttaka fór vonum framar en rúmlega 400 manns frá um 250 fyrirtækjum af landsbyggðinni kynntu þjónustu sína á kaupstefnunni. Ferðaþjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu höfðu greinilega mikinn áhuga á fjölbreyttu þjónustuframboði landsbyggðarinnar en um 1000 gestir heimsóttu Mannamót þetta árið.

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna eru ekki aðeins ferðakaupstefna heldur einnig kynningarvettvangur fyrir ferðaþjónustufyrirtæki af landsbyggðinni. Þetta tækifæri leyfir fyrirtækjum að sýna fram á fjölbreytni og gæði þjónustu sinnar við fagaðila frá höfuðborgarsvæðinu og aðra gesti. Markmið viðburðarins er að skapa samtal og tengsl milli fyrirtækja og auka sýnileika landsbyggðarinnar í ferðaþjónustu á Íslandi.

Á þessu ári fjölmenntu sunnlensk fyrirtæki að venju og voru hvorki fleiri né færri en 75 fyrirtæki sem sýndu fjölbreytt menningar- og ferðaþjónustuframboð svæðisins. Þau lögðu sitt af mörkum til að skapa líflegt og skemmtilegt andrúmsloft á Mannamótum, sem endurspeglaði kraft, sérstöðu og sjarma Suðurlands.

Ferðakaupstefnan Mannamót Markaðsstofa landshlutanna hefur heldur betur fest sig í sessi enda var hún nú haldin í tíunda sinn. Mannamót hafa verið haldin á ári hverju frá árinu 2014 að undanskildu 2021. Mannamót Markaðsstofa landshlutanna er viðburður sem stækkar og dafnar með hverju árinu og um leið og við þökkum öllum þeim sem tóku þátt í ár hjartanlega fyrir að gera þennan viðburð eins skemmtilegan og hann er þá hlökkum við til að bjóða sýnendur og gesti velkomna aftur að ári liðnu.

Hér má sjá myndir af Mannamótum 2024