Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs í Gömlubúð á Höfn, Hornafirði, var opnuð í júní 2013. Þar er sagt frá samspili manns og náttúru, jöklum og jarðfræði.
Sérstök áhersla er lögð á fuglalíf enda er Hornafjörður einn helsti viðkomustaður farfugla á Íslandi. Einnig er ítarlega fjallað um loftslagsbreytingar og hvaða áhrif þær muni hafa á líf okkar í framtíðinni.
Í Gömlubúð er lítil ferðamannaverslun með áherslu á bækur, minjagripi og vörur úr héraði. Í húsinu er gott aðgengi fyrir hreyfihamlaða.
Upplýsingar um opnunartíma má finna hér: https://www.vatnajokulsthjodgardur.is/is/svaedin/hornafjordur/skipuleggja-heimsokn/gamlabud-upplysingastodvar
Þátttakandi í VAKINN - gæða og umhverfiskerfi íslenskrar ferðaþjónustu.