Flýtilyklar
LAVA centre
LAVA - Eldfjalla og jarðskjálftamiðstöð Íslands er allsherjar afþreyingar- og upplifunarmiðstöð sem helguð er þeim gríðarlegu náttúruöflum sem hófu að skapa Ísland fyrir nærri 20 milljón árum síðan og eru enn að. LAVA centre gefur þér ekki aðeins kost á að upplifa þessi náttúruöfl með gagnvirkum og lifandi hætti heldur tengir þig einnig við náttúruna sem við þér blasir; Heklu, Tindfjöll, Kötlu, Eyjafjallajökul og Vestmannaeyjar.
LAVA er "glugginn" inn í jarðvanginn, Katla Geopark, ásamt því að vera alhliða upplýsinga, sölu- og þjónustumiðstöð fyrir ferðamenn. LAVA kemur einnig á framfæri, með beinum hætti, upplýsingum um jarðhræringar, eldgos og aðrar náttúruhamfarir í samvinnu við Almannavarnir, Veðurstofu Íslands og lögreglu.
LAVA er kjörinn viðkomustaður fyrir alla sem hafa áhuga á að læra meira um jarðfræði Íslands, sjá og finna fyrir kraftinum sem liggur undir landinu. Lifandi og skemmtileg upplifun fyrir alla fjölskylduna!
Aðgangsverð fyrir sýningu, 12 mínútna kvikmynd og útsýnispall er 3590 kr og fjölskyldu pakki er á 8975 kr (fullorðnir + 1 barn 6-15 ára greiða, aðrir 15 ára og yngri fá frítt).
Allar upplýsingar um verð má finna á heimasíðunni www.lavacentre.is og þar er einnig hægt að kaupa miða fyrirfram. Einnig er auðvelt og fljótlegt að kaupa miða við innganginn.
Vinsamlegast hafið samband vegna ferða og bókana.
Austurvegur 14










Öll fjölskyldan fyrir eina ferðagjöf
LAVA Centre er gagnvirk eldfjalla- og jarðskjálftasýning fyrir alla fjölskylduna.
Í sumar verður hægt að nýta eina "ferðagjöf" fyrir fjölskyldupakka sem er 45% afsláttur frá hefðbundu verði.
LAVA Centre er sú sýning sem hlotið hefur flest verðlaun á Íslandi, hún hentar öllum aldri og hafa börn sérstaklega gaman af því að læra um eldfjöllin með gagnvirkum hætti, jarðskjálftahermum og bíósýningu.
Sjáumst í sumar!
LAVA centre - ferðaupplýsingar
Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands