Flýtilyklar
360° Boutique Hotel4 stjörnur
Mosató 3

Þetta snýst allt um ánægða gesti
Sumarið 2020
Íslenskum gestum okkar bjóðast sérstök verð fram til loka ágúst:
Deluxe Herbergi (28fm), þriggja rétta kvölverður fyrir tvo, aðgangur að 200 fm SPA-i - 40.000 kr.
Junior Suite (35fm), þriggja rétta kvöldverður fyrir tvo, aðgangur að 200 fm. SPA-i - 50.000 kr.
The Grand Suite (55fm), þriggja rétta kvöldverður fyrir tvo, aðgangur að 200 fm. SPA-i - 70.000 kr.
Nudd 30 mín. 4.000 kr. 60 mín. 7.500 kr.
Barinn opinn 24/7.
Hótelið var opnað síðla árs 2018 og er aðeins 10 mín. austur af Selfossi í Flóahreppi. Uppi á hæð með víðasta útsýni í byggð á Íslandi.
360° Boutique Hotel - ferðaupplýsingar
Úr gagnagrunni Ferðamálastofu Íslands
Heimagisting
Gestastofur
Ölvisholt brugghús
Bændagisting
Vorsabær 2
Sundlaugar
Sundlaugar
Dagsferðir
Hellarnir við Hellu
Bændagisting
Miðás
Gistiheimili
Hestheimar
Sundlaugar
Sundhöllin Selfossi
Hestaafþreying
Sólhestar ehf.
Aðrir
- Selfossi
- 800 Selfoss
- 482-3335
- Stekkholt 1
- 801 Selfoss
- 856-5255
- Ástjörn 7
- 800 Selfoss
- 697-9280
- Húsatóftir 2a
- 801 Selfoss
- 486-5616, 895-0066
- Kálfhólar 21
- 800 Selfoss
- 857-2000
- Móland 3
- 800 Selfoss
- 699 5777
- Ás 1
- 851 Hella
- 897-3064
- Breiðanes
- 801 Selfoss
- 8525930
- Lýtingsstaðir
- 851 Hella
- 868-5577
- Norðurbraut 33
- 801 Selfoss
- 822-3345
- Fossnes C
- 800 Selfoss
- 4801200, 568-1410
- Lambastaðir
- 801 Selfoss
- 777-0705
- Þjóðólfshagi 1
- 851 Hella
- 898-3038
- Tryggvagata 13
- 800 Selfoss
- 898-6463
- Strokkhólsvegur 7
- 801 Selfoss
- 699-5777
- Sunnuvegur 5
- 800 Selfoss
- 7768707, 7700034
Saga og menning
Villingaholtskirkja
Villingaholt er kirkjustaður og var löngum stórbýli. Á 17. öld var hér prestur, Jón Erlendsson en hann var afkastamesti handritaskrifari landsins. Hann á sinn mikla þátt í að varðveita ýmsar helstu perlur handritanna með því að skrifa þau upp, m.a. að beiðni Brynjólfs Sveinssonar biskups. Frægasta ritið sem séra Jón bjargaði þannig frá glötun er Íslendingabók, en mörg handrita okkar eru rituð með hendi Jóns. Síðar bjó hér þjóðhagsmiðurinn og bóndinn, Jón Gestsson (1863-1945) en frá honum er komin mikil ætt hagleiksfólks. Jón teiknaði og byggði núverandi Villingarholtskirkju á árunum 1910-1911. Kirkjan er bárujárnsklædd úr timbri og á hlöðnum grunni. Kirkjan er með turni og sönglofti og tekur 100 manns í sæti. Ef gengið er syðst á lóð Þjórsárvers má sjá gamlan bæjarhól en þar stóð Villingaholtskirkja og bæjarhúsið áður. Í kjölfar viðverandi sandfoks og mikils tjóns í suðurlandsskjálftanum árið 1784 voru þau flutt um set að núverandi stað. Kirkjan var friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.
Náttúra
Ásavegur - þjóðleið
Ásavegur er hin forna þjóðleið fólks um Suðurland. Liggur leið þessi um þveran Flóann og má finna miklar traðir á þessum slóðum sem til marks eru um þá miklu umferð sem hefur verið um þennan veg á liðnum öldum. Þarna lá leið uppsveitarmanna og þeirra sem komu austan að um ferjustaðinn hjá Króki í Holtum og hjá Egilsstöðum, niður að verslunarstaðunum Eyrabakka. Einnig lá þar leið vermanna er komu norðan Sprengisands til sjósóknar á suðurströndinni og lágsveitabænda með rekstur til og frá afrétti, svo dæmi séu nefnd. Þessa leið fóru Skeiða- og Hreppamenn, Rangæingar, sem fóru yfir Þjórsá sem og Skaftfellingar sem fóru Fjallabaksveg nyrðri. Merkt gönguleið er á milli Orrustudals og Hnauss (um 6 km ganga). Orrustudalur og Skotmannshóll er sögusvið Flóamannasögu. Í Orrustudal voru háðar tvær miklar orrustur eftir landnám. Féll m.a. Hásteinn Atlason í hinni fyrri, en Önundur bíldur í þeirri síðari. Á Skotmannshóli stóð Þormóður Þjóstarsson er hann skaut hinu fræga bogskoti sem skar úr um lögmæti vígs Arnars í Vælugerði.
Á þessari leið er hæsti punktur Flóahrepps en þar má sjá stórfenglegt útsýni í allar áttir.
Saga og menning
Laugardælir
Laugardælir er lítil byggð rétt utan við Selfoss. Laugardælir var einn fjölfarnasti lögferjustaður landsins þar til brúin var byggð yfir Ölfusá hjá Selfossi 1891. Árið 1957 var ný kirkja vígð á Selfossi og Laugardælasókn lögð til hennar, utan nokkurra bæja sem færðust til Hraungerðissóknar. Staðurinn var kirkjulaus í nokkur ár eða til ársins 1965 þegar nýja kirkjan var byggð. Kirkjan er úr steinsteypu, 300 m² með pípuorgeli og tekur 70 manns í sæti. Bjarni Pálsson, byggingarfulltrúi á Selfossi, teiknaði hana og Sigfús Kristinsson, byggingarmeistari á Selfossi, var kirkjusmiður. Í garði Laugardælakirkju er legstaður Bobbby Fischer (1943-2008), hins litríka og umdeilda heimsmeistara í skák.
Saga og menning
Þingdalur
Þingdalur var þingstaður sveitarinnar allt frá landnámstíð. Þinghúsið hét þá Vælugerði og stendur Þingdalur á grunni þess. Þingdalur stendur frekar hátt í miðri sveitinni og rétt við bæinn er myndarlegur skógur en þar var áður þingstaðurinn, Vælugerðisþing. Þing var stofnsett þar á 16. öld og stóð fram á þá 20. en síðast var haldið þing hér árið 1947. Auk þess er sagt að Þingdalur sé síðasta kunna aðsetur hins merka draugs Kampholts-Móra. Á tímum móðurharðinda á það að hafa gerst að ungur drengur drukknaði eftir að hafa verið úthýst þegar hann beiddist gistingar á bæ nokkrum. Hann gekk aftur og sór þess eið að fylgja afkomendum bóndans á bænum í 9 kynslóðir.
Náttúra
Ingólfsfjall
Ingólfsfjall í Ölfusi er 551m. Ingólfsfjall er hömrum girt á þrjá vegu og mjög hlíðabratt. Þegar sjávarstaða var hæst í ísaldarlok hefur það verið sæbrattur höfði sem brimið braut niður og skapaði þá hinar bröttu hlíðar. Það er tengt Grafningsfjöllum með Grafningshálsi. Ingólfsfjall er einkum gert úr móbergi með hraunlögum inn á milli einkum að neðan og í kolli. Ingólfsfjall hefur orðið til um miðja ísöld. Suður úr vesturhorni fjallsins skagar grár klettamúli
Silfurberg sem er úr móbergi með ljósum holufyllingum sem aðallega eru geislasteinaútfellingar. Þar suður af er Kögunarhóll og liggur þjóðvegurinn á milli. Ingólfsfjall er kennt við landnámsmanninn Ingólf Arnarson. Uppi á fjallinu er grágrýtishæð sem heitir Inghóll og segja munnmæli að þar sé Ingólfur heygður. Undir Ingólfsfjalli sunnanverðu er Fjallstún.
Í Landnámabók segir að þar hafi Ingólfur Arnarson haft vetursetu hinn þriðja vetur sinn hér á landi á leið sinni til Reykjavíkur. Síðar reis þar stórbýli sem hét Fjall og fór í eyði á 18. öld. Enn sjást leifar fornra mannvirkja á staðnum og eru nú friðlýstar.
Hinn 29. mai 2008 voru upptök Suðurlandsskjálfa að stærðinni 6,3 á richter kvarða undir Ingólfsfjalli.
Náttúra
Ytri Rangá
Ytri-Rangá rennur um Hellu, en áin á upptök sín norður af Heklu, í Rangárbotnum á Landmannaafrétti þar sem hún kemur upp á nokkrum stöðum undan vikrinum. Áin er 55 kílómetra löng og ein gjöfulasta laxveiðiá landsins. Áin er dragá og bergvatnsá.
Í ánni eru nokkrir fossar, Fossabrekkur, Gutlfoss, Árbæjarfoss og Ægissíðufoss. Um 10 kílómetrum neðan við Hellu rennur Þverá saman við ána og eftir það heitir hún Hólmsá þangað til hún rennur til sjávar.
Mikil fiskirækt hefur verið stunduð í ánni til margra ára og hefur það skilað því að áin er oftar en ekki efst á listanum yfir laxveiðiár landsins og er hún afar vinsæl sem slík, en ræktun í ánni er í höndum Veiðifélags Ytri-Rangár.
Náttúra
Urriðafoss
Urriðafoss er vatnsmesti foss landsins. Hér fellur Þjórsá fram af jaðri hins mikla Þjórsárhrauns (360 m3/sek) í fögru og friðsælu umhverfi. Fallhæð fossins er 6 metrar þar sem hann er hæstur. Þjórsárhraun, sem er eitt mesta hraun sem runnið hefur á jörðinni í einu gosi frá því að ísöld lauk, má sjá við Urriðafoss, þar sem fossinn steypist fram af austurbrún hraunsins. Lax gengur upp Þjórsá að fossinum og nokkuð upp fyrir hann. Urriðafoss er náttúrudjásn rétt utan þjóðvegs 1.
Náttúra
Dælarétt
Dælarétt, er ævaforn fjárrétt stutt sunnan við Suðurlandsveg. Hún er talin elsta rétt landsins og var helsta skilarétt svæðisins. Réttin er í landi eyðibýlisins Heiðabæjar. Þar var síðast réttað haustið 1970 og hefur réttin nú verið friðlýst. Dælarétt er hlaðin úr grjóti úr hinu stórdílótta Þjórsárhrauni. Skammt frá eru sprungur eftir Suðurlandsskjálftann árið 2000. Sýnið VARÚÐ.
Náttúra
Flóaáveitan
Flóaáveitan eru skurðir sem liggja um gjörvallan Flóa eða allt frá Ölfusá í vestri að Þjórsá í austri. Þetta stórvirki síns tíma samanstóð af 300 km löngum skurðum sem að mestu voru handgrafnir- og 900 km af flóðvarnargörðum. Flóaáveitan mun hafa náð yfir 12 þúsund hektara land og með tilkomu hennar urðu mikil umskipti í búskap og atvinnuháttum á svæðinu. Framkvæmdir við áveituna hófust 1922 og var flóðgáttin tekin í notkunn árið 1927 þegar Flóaáveitan tók til starfa. Enn þann dag í dag gegnir hún viðamiklu hlutverki í vatnsmiðlun í sveitafélaginu. Inntak áveitunnar er við Hvítá, þar er upplýsingaskilti með ítarlegum upplýsingum um Flóaáveituna. Til austurs frá inntakinu er merkt gönguleið (um 4,4 km ganga, aðra leið).
Saga og menning
Kolsgarður
Kolsgarður er forn garður sem hefur verðið hlaðinn úr torfi og talinn vera frá 10. öld. Samkvæmt Þjóðsögunni þá gerði Kolur í Kolsholti sér tíðförult að Ragnheiðarstöðum og sátu þau Ragnheiður á Ragnheiðarstöðum löngum á tali saman. Langt er á milli bæjanna og yfir miklar mýrar að fara. Á Kolur því að hafa hlaðið garð mikinn sem við hann er kenndur og nefndur Kolsgarður eða Kolsstígur, því ekki þótti honum sæma að hitta Ragnheiði aurugur og blautur. Víða sér enn vel mótað fyrir Kolsgarði í mýrunu Suður af Kolsholti.
Náttúra
Þjórsá
Þjórsá er jökulá að uppruna sem á meginupptök sín í Hofsjökli. Hún er lengsta á landsins eða 230 km löng og hefur mesta vatnasviðið um 8000 km². Vatnsmagn hennar er svipað og Ölfusár, 370 m³/sek, og kemur að mestu undan Hofsjökli og Vatnajökli. Aurframburðurinn er gífurlegur, um 4,5 milljónir tonna á ári. Á veturna getur áin safnað í sig gífurlegu magni af ís sem sest til neðan til. Stórfenglegt er að koma að gljúfrum Þjórsár neðan við Urriðafoss á vorin þegar íshrönnin er að bresta og áin að ryðja sig. Hægt er að ganga með gljúfrum og liggur vegurinn samsíða þeim stutt frá.
Saga og menning
Rútsstaða-Suðurkot
Fæðingarstaður Ásgríms Jónssonar listmálara, eins helsta brautryðjanda íslenskrar myndlistar. Hann varð fyrstur íslenskra málara til að gera myndlist að aðalstarfi. Ásgrímur fæddist þann 4. mars 1876 í Suðurkoti í Rútsstaðahverfi í Flóa. Árið 1897 hélt hann til Kaupmannahafnar þar sem hann stundaði nám við Konunglega listaháskólann árin 1900-1903.
Náttúra
Hellisskógur
Hellisskógur er skógræktarsvæði rétt utan við Selfoss. Lagðir hafa verið akvegir og göngustígar um svæðið, settir bekkir og borð og Hellirinn grafinn út og útbúinn sem áningarstaður þar sem fólk getur
sest niður og fundið sér skjól fyrir veðri og vindum. Hellisskógur hefur smám saman orðið eitt helsta útivistarsvæði Selfyssinga.
Stóri-Hellir í Hellisskógi myndaðist við lok jökulskeiðs á ísöld þegar brim svarf klettinn. Ummerki um
hærra sjávarborð og sjávarrof sést á fjölmörgum stöðum í hellinum sem myndaðist í 0,7-3,1 milljón ára gömlu basalti. Innst í hellinum var áður geymt hey en fjárhús var staðsett við hellismunnann að framanverðu. Telja sumir að reimt sé í hellinum, af draug með bláan trefil.
Saga og menning
Kambur
Vestast í Hróarsholtshverfinu er bærinn Kambur. Hinn 9. febrúar 1827 gerðist þar sá atburður sem frægur hefur orðið í Íslandssögunni, er fjórir grímuklæddir menn brutust inn, lögðu hendur á heimilisfólkið og rændu töluverðu fé. Þeir bundu bóndann Hjört Jónsson og húsfólk hans og brutu upp hirslur í leit að peningum. Þeir rændu um 1000 ríkisdölum. Það var Þuríður formaður sem átti þátt í að upplýsa málið. Þuríður taldi sig þekkja handbragðið á skó sem fundist hafði, og bárust við það böndin að manni þeirrar konu sem skóinn hafði gert, Jóni Geirmundssyni á Stéttum í Hraungerðishreppi. Þuríður veitti því einnig eftirtekt að för á járnteini sem fundist hafði, pössuðu við steðja í eigu Jóns. Af vettlingi sem fannst í túninu á Kambi, bárust böndin að Jóni Kolbeinssyni, á Brú í Stokkseyrarhreppi, og lá Hafliði bróðir hans einnig undir grun. Þegar farið var að yfirheyra þessa menn játuðu þeir loks á sig ránið og bentu á forsprakkann, sem reyndist vera Sigurður Gottsvinsson á Leiðólfsstöðum. Frekari rannsókn leiddi í ljós fleiri aðila sem voru samsekir. Um ári síðar kvað sýslumaður Árnesinga upp dóm í málinu. Var Sigurður dæmdur til hýðingar, brennimerkingar og ævilangs þrældóms í Kaupmannahöfn, Jón Geirmundsson til hýðingar og þrældóms ævilangt, Jón Kolbeinsson til 12 ára þrældóms og Hafliði til 8 ára. Sigurður var drepinn í fangavistinni, en hinir fengu sakauppgjöf frá kóngi.
Náttúra
Ferjunes
Bærinn Ferjunes stendur á Þjórsárbökkum og var áður fjölfarinn ferjustaður yfir Þjórsá. Sandhólaferja lagðist af við tilkomu Þjórsárbrúar. Skáldkonan Oddný Kristjánsdóttir bjó í Ferjunesi
Saga og menning
Selfosskirkja
Selfosskirkja var byggð á árunum 1952 - 1956 og vígð það sama ár. Hún var teiknuð af Bjarna Pálssyni skólastjóar Iðnskólans á Selfossi. Árið 1978-1984 var bætt við kirkjuna forkirkju, turn og safnaðarheilmili með eldhúsi ásamt aðstöðu fyrir félagsstarf. Kirkja var máluð og skreytt af Jóni og Grétu Björnsdóttir listakonu sem sá um flúrið en í því er leitast við að fylgja kirkjuárinu. Gluggar kirkjunar voru unnir af glerlistafólki frá Þýskalandi og kom í kórinn árið 1987 en í kirkjuskipið árið 1993. Þó Selfosskirkja sé ung að árum er hún með sérstöðu meðal kirkna landsins á 20 öld.
Sr. Sigurður Pálsson var fysti sóknarpresturinn í Selfosskirkju en áður var hann í Hraungerði í Flóa en flutist á Selfoss 1950 þegar fólksfjölgun varð hér. Lagði hann mikla áherslu á helgihald, endurreisn hins forna og sígilda messusöngva ásamt messuformi sem er þekkt sem helgisiðabókin Graduale (þrepasöngur) og var gefin út árið 1594. Grallari kallast þessi bók og inniheldur tónlög og texta að messusöng og tíðagjörð kirkjunnar. Hefur verið enn þá daginn í dag haldið í þessum anda, Grallarans íslenska og mörgum kunn að finnast að hönnun kirkjunnar minna einnig á þennann anda. Sr. Sigurður Sigurðarson tók við embætti föður sins árið 1971 en lét af störfum árið 1994 og hélt þá í vígslubiskupsembætti í Skálholti.
Náttúra
Timburhóll - Skógrækt
Skógræktarreitur Ungmennafélagsins Samhygðar. Grillaðstaða og gróskumikill skógur. Hér er minnisvarði um hjónin í Vorsabæ, Guðfinnu Guðmundsdóttur og Stefán Jasonarson. Þau hjónin voru bændur í Vorsabæ í hálfa öld og Stefán var frumherji í störfum fyrir samtök sunnlenskra bænda, ungmennafélagshreyfinguna, umferðaröryggi og varðveislu þjóðlegra verðmæta. Auk þess er hér minnismerki um Ásgrím Jónsson listmálara. Gestir eru beðnir um að ganga vel um.
Saga og menning
Íslenski bærinn
Austur-Meðalholt er dæmigerður sunnlenskur torfbær frá lokum 19. aldar. Fáir slíkir bæir eru til á landinu og hefur mikið verið lagt í þróun þessa bæjar og varðveislu. Íslenski torfbærinn endurspeglar sögu og lifnaðarhætti Íslendinga í aldanna rás.
Náttúra
Ölfusá
Ölfusá er vatnsmesta á landsins þar sem meðalrennsli árinnar er 423 m³/sek. Upprunni Ölfusár er á milli Grímsness og Hraungerðishrepp þar sem Sogið og Hvítá falla saman og er 25 km long og fellur niður að ósum Eyrarbakka austanverðu. Ölfusá rennur með vesturjaðri Þjórsárhrauns. Áin rennur jökulituð í gegnum Selfoss í gegnum djúpa gjá sem er 9m djúp. Þrátt fyrir að áinn sé jökullituð er þó nokkuð af lindarvatni þannig að á veturnar í kuldatíð á hún til með að vera allt að því tær. Áin myndar stórt stöðuvatn eða sjávarlón í Ölfusinu áður en hún rennur út í sjóinn austan við Óseyri. Þetta lón nefnist Ölfusárós.
Saga og menning
Ölfusárbrú
Ölfusárbrú er byggð yfir vatnsmesta fljót landsins sem spanner 384 rúmmetra á sekúndu að meðaltali á árs grundvelli. Á suðurenda brúarinnar við Tryggvaskála er upplýsingaskilti sem sýnir flóðahæð í þremur mestu flóðum í Ölfusá á 20. Öld.
Árið 1872 var fyrst talað um að brúa yfir Ölfusá af Hannesi Stehensen presti. Fyrst var farið í að ferja fólk yfir ána. Árið 1891 hófst brúarsmíðin sjálf. Gekk það í fyrstu með áföllum þar sem þeir mistu einn mann í ána. Síðar kom í ljós að stöplarnir undir brúni voru ekki nógu hair svo að klakabelti komast undir hana. Vígsla brúarinnar var 1891 og voru settar ýmsar reglur hvað varðar notkunn brúarinnar en það varðar reiðmennsku yfir brúnna.
Árið 1944 slitnaði brúarstrengur vegan þyngdar mjólkurbíls með annan bíl í togi svo að þeir féllu báðir í ánna. Var þá ný brú byggð árið 1945 og þjónar enn þá daginn í dag sínum tilgangi og er hún 84 metrar að lengd á milli stöpla.
Saga og menning
Hraungerðiskirkja
Hraungerði er kirkjustaður, höfuðból og fyrrum þingstaður. Landnámsjörð Hróðgerðs hins spaka, ættföður Oddverja. Fyrst er getið kirkju í Hraungerði í skrá Páls biskups frá því um árið 1200 og hafa fjölmargar kirkjur verið á staðnum síðan þá. Núverandi Hraungerðiskirkja var vígð 4. sunnudag í aðventu, þann 21. desember 1902, af sr. Valdimar Briem prófasti. Eiríkur Gíslason, smiður frá Bitru í Hraungerðishreppi, var ráðinn til að teikna kirkjuna, gera byggingaráætlun og að lokum smíða hana. Kirkjunni hefur vel verið haldið við á undanförnum árum. Kirkjan var friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.
Náttúra
Ægissíðuhellar
Á Ægissíðu er finna manngerða hella sem af mörgum eru taldir vera frá því fyrir landnám og að í þeim hafi búið írskir Papar. Einn af þeim sem trúði þessari kenningu var Einar Benediktsson og fékk hann Kjarval til að teikna upp rissur af veggjakroti á veggjunum og auk þess fékk hann sr. Matthías Jochumson, sóknarprest í Odda til að messa í Kirkjuhelli.
Alls er vitað um 12 hella í landi Ægissíðu og eru nokkrir þeirra aðgengilegir í dag, en flestir þeirra ýmist lokaðir eða þá hættulegt að komast inn í þá. Allir hellarnir eru í einkaeigu og er aðgengi ekki heimilt nema með leyfi ábúenda.
Hellarnir hafa um árabil verið vinsæll áningastaður ferðamanna og þeirra vinsælastur er svonefndur Fjóshellir. Fjóshellir samanstendur af hárri og víðri hvelfingu og innst í honum er hellirinn hærri og þannig lagaður að hann minnir á altari eða kapellu. Þar er krossmark á miðjum vegg sem um margt bendir til þess að þar hafi kristnir menn hafst við.
Ekki hefur enn tekist að aldursgreina hellana og fræðimenn greinir á um hvort raunhæft megi telja að hellarnir hafi verið frá því fyrir landnám.
Um árabil voru hellarnir notaðir ýmist fyrir búfénað eða til að geyma hey í þeim og var Fjóshellir um árabil nýttur sem hlaða fyrir fjósið á Ægissíðu og upp úr hellinum gengu járnbrautateinar upp í fjós og var heyið dregið þangað upp á vagni á teinunum.
Náttúra
Skógræktin í Skagaási
Skógræktin í Skagaási er gróskumikill trjálundur Skógræktarfélags Villingarholtshrepps. Skjólsæll unaðsreitur með ágætu aðgengi. Fólk er vinsamlegast beðið um að virða gönguleiðir og ganga vel um. Einungis er leyfilegt að grilla á merktum grillstað vegna eldhættu.
Sýningar
Hespuhúsið
Söfn
Fischersetur Selfossi
Gestastofur
Ölvisholt brugghús
Handverk og hönnun
Handverksskúrinn
Verslun
Uppspuni
Handverk og hönnun
Ullarverslunin Þingborg
Aðrir
- Forsæti 5
- 803 Selfoss
- 894-4835
- Fákasel, Ingólfshvoli í Ölfusi
- 816 Ölfus
- 847-3460
- Asutur-Meðalholt
- 801 Selfoss
- 694-8108, 864-4484, 892-2702
Bændagisting
Hótel
Fosshótel Hekla
Hótel
Hotel South Coast
Gistiheimili
Hestheimar
Veitingahús
Ingólfsskáli - Viking Restaurant
Aðrir
- Austurvegur 22
- 800 Selfoss
- 482-2899, 896-1250
- Þrastarlundur
- 801 Selfoss
- 8667781
- Skálmholt
- 801 Selfoss
- 482-2529
- Austurvegur 22
- 800 Selfoss
- 482-3079
- Kríumýri
- 801 Selfoss
- 897-7643 , 899-7643
- Austurvegur 48
- 800 Selfoss
- 482-1005
- Húsatóftir 2a
- 801 Selfoss
- 486-5616, 895-0066
- Eyravegur 2
- 800 Selfoss
- 4802500
- Eyrarvegur 8
- 800 Selfoss
- 845-4252, 482-4099
- Eyravegur 32
- 800 Selfoss
- 8955010
- Austurvegur 46
- 800 Selfoss
- 570-6763, 570-6763
- Eyrarvegur 2
- 800 Selfoss
- 530-7071
- Tryggvagötu
- 800 Selfoss
- 482-1782
- Arnberg
- 800 Selfoss
- 480-1300, 840-1749
- Austurvegur 7
- 800 Selfoss
- 4821266
- Eyravegur 2
- 800 Selfoss
- 581-2345
- Austurvegur 3
- 800 Selfoss
- 482-3330
- Tryggvatorg
- 800 Selfoss
- 4821390
- Þingborg
- 801 Selfoss
- 691-7082
- Larsenstræti
- 800 Selfoss
- 483-1919
- Eyravegur 3 neðri hæð
- 800 Selfoss
- 7744434
- Þrastalundur
- 801 Selfoss
- 661-7000
- Austurvegur 31b
- 800 Selfoss
- 4821007