Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Tafir á umferð á Gullhringnum vegna fjárrekstra

Föstudaginn 9. sept og laugardaginn 10. sept má búast við umferðartöfum á eftirtöldum vegum í Biskupstungum vegna fjárrekstra.

Föstudaginn 9. sept og laugardaginn 10. sept má búast við umferðartöfum á eftirtöldum vegum í Biskupstungum vegna fjárrekstra.

Föstudaginn 9 .sept

Biskupstungnabraut (vegur 35) , milli Gullfoss og Geysis  frá kl: 11:30 til 13:30.

Skeiða- og Hrunamannavegur (vegur 30)  við Gýgjarhól milli kl.: 14:00 og 15:30.

Einholtsvegur (vegur 358) frá Kjarnholtum að Tungnaréttum frá kl:16:00 fram á kvöld.

Laugardaginn 10. sept

Biskupstungnabraut (vegur 35) frá Vatnsleysu að Múla frá kl:13:00 og fram eftir degi.

Einholtsvegur (vegur 358) frá Tungnaréttum að Gýgjarhólskoti frá kl:13:00 og fram eftir degi.

 

Líklegt er  að mestu tafirnar gætu verið á milli Gullfoss og Geysis en þar verða björgunarsveitarmenn að stjórna umferð  !